Snemma árs 2011 lauk markaðsdeild Landsbankans vinnu við nýtt heildarútlit markaðsefnis sem endurspeglar nýja stefnu bankans. Vefdeild bankans tók mið af niðurstöðum þeirrar vinnu og lagaði að kröfum vefmiðilsins. Mikill metnaður var lagður í það að ná fram útliti og upplifun sem samræmdist markaðsefni og stefnu bankans.
Við hönnun vefsins var mikið lagt upp úr því að gera hann sem læsilegastan og þægilegastan fyrir augað. Bakgrunnur vefsins og bakgrunnur síðna hafa hvor um sig sérstaka áferð. Markmiðið er að ná fram svipaðri tilfinningu sem um prentað efni sé að ræða og auka þannig dýpt og persónuleika vefsvæðisins.
Bakgrunnur vefsins er tvískiptur. Annars vegar bakgrunnslitur og hins vegar gegnsætt munstur. Almennar textasíður hafa örlitla pappírsáferð og eru með ljósum drapplituðum tóni.
Letrið á vefnum er stórt og læsilegt, bæði í almennum texta og fyrirsögnum. Notast er við leturgerð sem sérstaklega var hönnuð fyrir prentefni bankans, og var svo umbreytt í svokallaðan vef-font fyrir notkun á vefnum.
Letur, rétt eins og litir og myndir, skapar ímynd bankans. Því var mikilvægt að innleiða vef-fonta á vefinn sem hluta af rödd bankans.
Útgangspunkturinn við val á stílsniði fyrir vefinn var að vefurinn þyrfti að koma vel út í venjulegum tölvum, spjaldtölvum og sem flestum snjallsímum. Notast er við sveigjanlegt 12 dálka kerfi (kveikja/slökkva á dálkum) til að brjóta allt efni niður á síðurnar. Þetta býður upp á mikinn sveigjanleika í umbroti texta og annars efnis og er í raun ný nálgun við framsetningu efnis á vef.
Með þessu er einnig lagður grunnur að sveigjanlegum birtingarformum eftir skjáupplausn og tækjum („responsive design“).
Sýna dálka/slökkva á dálkum
Landsbankinn hf. Austurstræti 11, 155 Reykjavík, Kt. 471008-0280
Swift: NBIIISRE Reglur Lagalegur fyrirvari Umboðsmaður viðskiptavina Veftré