Vefur Landsbankans byggir á vefumsjónarkerfinu Lisa Live og er forritaður í ASP.NET 4.0. Hann keyrir á Internet Information Server (IIS) og MS SQL gagnagrunnum. Vefurinn keyrir á fimm til sjö vefþjónum og nýtir F5 álagsjafnara (load balancer) til að draga úr álagi á vefþjóna, þjappa skrám og auka hraða.
Stuðst er í hvívetna við nýrri vefstaðla, s.s. HTML5 og CSS3, og er leitast við að leysa vandamálin með þeim tólum sem þessi tækni býður upp á. Lögð er áhersla á að nýta það sem nýrri vafrar bjóða upp á og falla frekar með reisn í eldri vöfrum. Þetta á sérstaklega við hluti sem CSS3 býður upp á, s.s. rammar, skuggar og litastigull (e. gradient).
CSS er skrifað á hlutbundinn hátt með LESS. Breytur eru notaðar sem og nafnrými (e. namespace) til að stjórna og skilgreina stíla. Þetta er gert til að auðvelda endurnýtingu kóða og gera viðhald og breytingar auðveldari.
LEGO (Landsbankinn Enviromental Graphical Objects) er þróunarsvæðið okkar. Þarna eru nýjar einingar og stjórntæki sett upp meðan á þróun stendur. Innan LEGO eru svo allir stílar og uppsetningar skilgreindar með sýnidæmum. Þetta hjálpar vefforriturum að stílsetja og vinna við önnur grafísk eindi á samræmdan hátt.
Þó javascript sé mjög mikið nýtt á vefnum þá er reynt að gera það samkvæmt hugmyndafræðinni um Unobstrusive Javascript. Ekki er vísað beint í javascript föll í HTML heldur eru CSS stílar nýttir til að tengja saman javascript og HTML þegar síðan er tilbúin. jQuery er sá grunnur sem við byggjum á við hönnun og forritun.
Mikil vinna hefur farið í að bæta vefinn með tilliti til hraða. Öll Javascript og CSS skjöl eru minnkuð áður en þau eru send til notanda. Þau eru svo sameinuð í sem fæst skjöl vefþjónamegin til að draga úr HTTP samskiptum milli notenda og vefþjóns. Efnisveita (e. Content Delivery Network) dreifir kyrrstæðum skrám til að minnka álag á vefþjón.
Þó flestir nýti sér mús eða fingur til að skoða vefsíður þá má ekki gleyma þeim sem vilja fara aðrar leiðir. Til að auðvelda þeim sem vilja frekar nota lyklaborðið er passað vel upp á að Tab Index sé rétt skilgreint á öllum síðum og leiði notandann rétt í gegnum síðuna. Vefsíðan nýtir sér svo WAI-ARIA staðalinn til að auðvelda aðgengi fatlaðra að síðunni.
Internetið er samfélag vefsvæða og landsbankinn.is leitast við að vera virkur þegn í þessu samfélagi. Opnir staðlar eru nýttir til að auðvelda öðrum vefsvæðum til að nálgast efni og gögn af vefnum, s.s. RSS og Open Graph Protocol. Að auki er boðið upp á opnar gagnaveitur sem skila gögnum á XML formi, s.s. gengisskráningar o.fl.
Mikið er um að myndbönd séu sett á vefsíðuna, hvort það er í auglýsingar, kynningarmyndir, kennslumyndbönd eða önnur markaðsátök. Til þess að dreifa álagi frá kerfum bankans þá var settur upp sérstakur streymisvefþjónn sem dreifir myndböndum. Notendamegin eru myndbönd birt með annaðhvort Flash eða HTML5 <video> þegar vafrinn styður ekki Flash.
Mikil áhersla er lögð á að greina vel nýtingu vefs og notkunarmynstur svo hægt sé að bæta hann enn meir í framtíðinni. Til þess eru bestu tól nýtt, s.s. Google Analytics og Urchin 7.
Landsbankinn.is er stór vefur sem margir treysta á að sé aðgengilegur og sinni sínu hlutverki. Það er því mikilvægt að allar breytingar séu vel prófaðar áður en þær fara í keyrslu. Á hinn bóginn eru kröfurnar um hraðar breytingar háværar. Í vefdeildinni var tekið upp fjórskipt lag til að stýra ferlinu og tryggja sem best að báðum markmiðum sé náð. Forritari vinnur sína vinnu á sinni þróunarvél og sendir svo breytingar út á sameiginlegan prufuþjón. Þar tekur svo sjálfvirkur hugbúnaðarþýðandi við breytingum sem að lokum enda svo á þeim vefþjónum sem keyra vefinn.
Landsbankinn hf. Austurstræti 11, 155 Reykjavík, Kt. 471008-0280
Swift: NBIIISRE Reglur Lagalegur fyrirvari Umboðsmaður viðskiptavina Veftré