Leiðakerfi

Ný hugsun

Leiðakerfi vefsins hefur verið endurskoðað frá grunni. Á gamla vefnum var aðalleiðakerfið veftré vinstra megin á vefnum sem var alltaf sýnilegt í heild sinni. Takkar ásamt texta- og myndahlekkjum á síðum voru því til stuðnings auk leitar.

Það að sýna veftréð í heild sinni gat verið ruglingslegt á köflum og gerðu sumir notendur ekki greinarmun á vefgreinum í tré (navigation) og hlekkjum á síðu.

Nú er lögð meiri áhersla á að halda skýrari sýn á þann vefhluta sem notandi er á. Ef notandi er að skoða upplýsingar um Námuna er eðlilegt að leggja áherslu á það vefsvæði og trufla sem minnst með hlekkjum á önnur og óskyld svæði. Þó er alltaf auðvelt að átta sig á staðsetningu sinni innan vefsins og komast til baka.


Ekki tókst að hlaða inn skrá

Fjölbreyttar leiðir til að nálgast efni á vefnum:

Ofur-fellilisti (Mega dropdown menu)

Nota má ofur-fellilista (Mega dropdown menu) í aðal-menu til að komast hratt frá einum stað til annars. Þar er efni vefsins flokkað niður og sett fram á skipulegan og skýran hátt, bæði með listum og myndefni.


GPS (Global positioning system)

Önnur nýjung á vefnum er nýstárlegt brauðmolakerfi sem við í vefdeildinni kjósum að kalla „Global Positioning System“ eða GPS. Um er að ræða viðbót við hefðbundin "bredcrumbs"-kerfi sem segja manni hvar maður er staddur á vefnum og gera manni kleift að rekja sig til baka í átt að forsíðu.

En til viðbótar býður GPS-ið upp á fellilista við hvert "level" í brauðmolaslóðinni. Í listanum finnur maður allar undirsíður viðkomandi vefgreinar og getur valið þær. Því getur maður notað GPS-ið til að rekja sig fram og til baka um allan vefinn.


Efni á síðum

Lögð er áhersla á að gera fólki kleift að ferðast um vefinn í gegnum efni á síðum: Hnappar, hlekkir í texta og myndum, fellilistar o.fl. bjóða helstu valkosti með skýrum hætti. Dæmi: Lífeyrissparnaður.

Yfirlitssíður falla einnig í þennan flokk. Dæmi: Einstaklingar, Fyrirtæki, Rekstur fyrirtækja.


Flipar

Flipar eru mikið notaðir til framsetningar á afmörkuðum vefhlutum. Þeir gefa strax góða yfirsýn yfir efni viðkomandi svæðis, gott er að átta sig á staðsetningu sinni og auðvelt er að ferðast fram og til baka um svæðið. Þegar farið er milli flipa hleðst aðeins inn sá hluti síðunnar sem er undir flipanum, ekki síðan í heild. Dæmi: Varðan, Náman, Markaðir.


Undirveftré

Þegar komið er djúpt í vefinn er oft gott að styðjast við undirveftré, eða kort af viðkomandi svæði. Boðið er upp á slíkt eftir atvikum, þegar komið er niður á undirsíður djúpt í vefnum. Dæmi: Viðbótarlífeyrissparnaður, Rekstur fyrirtækja o.fl.


Leit

Leit á landsbankinn.is nýtir sérsniðna leitarvél frá Google. Leitarvélin stingur upp á ákveðnum leitarorðum þegar orð er slegið inn í leitarsvæðið (autosuggestion).


RSS

Gerast má áskrifandi að fréttum, fróðleik og bloggi frá Landsbankanum með RSS-áskrift og fá þannig efni frá Landsbankanum án þess að heimsækja vefinn reglulega.