Vefur Landsbankans

Nýr vefur Landsbankans opnaði 15. nóvember 2011. Vefurinn er einn stærsti þjónustu-, upplýsinga-, fræðslu- og fjármálavefur landsins fyrir einstaklinga, fyrirtæki og fjárfesta.

Þrjú aðskilin vefsvæði

Á vef Landsbankans er að finna mikið magn efnis af ýmsum toga,
þ.á m. vörusíður fyrir vörur og þjónustu bankans, fréttir og tilkynningar, upplýsingasíður um skipulag, rekstur og afkomu bankans, lendingar-síður fyrir markaðsherferðir, greiningar, fróðleik, bloggpistla og fleira.

Grundvallarbreytingar hafa verið gerðar á uppbyggingu, hönnun, forritun og efnistökum vefsins. Ein viðamesta breytingin er sú að honum hefur nú verið skipt upp í þrjú vefsvæði sem hvert er sett upp með þarfir ólíkra markhópa í huga:

Vörur og þjónusta

Inniheldur upplýsingar um vörur og þjónustu bankans fyrir einstaklinga og fyrirtæki, fréttir og tilkynningar, upplýsingar af mörkuðum og fleira.

Bankinn

Sérstakt efni helgað fjölmiðlum og fjárfestum, samfélagslegri ábyrgð, mannauðsmálum og öðru sem tengist rekstri, afkomu og skipulagi bankans.

Umræðan

Þar er að finna fjölbreytt og fróðlegt efni um efnahags- og fjármál, s.s. greiningar Hagfræðideildar, Dagbók Eignastýringar, blogg um fjármál heimilisins, skoðanapistla og aðsendar greinar.

Forsíða vefsins

Á forsíðu er að finna vinsælasta efni vefsins, s.s. innskráningu í netbanka, upplýsingar um gengi gjaldmiðla auk annarra upplýsinga af mörkuðum, fréttir og tilkynningar og hlekki á mikið notaðar síður eins og vexti, verðskrá, útibú, hraðbanka o.fl. 

Að auki má finna nokkuð tæmandi lista yfir síður hvers flokks í ofur-fellilista (Mega dropdown menu) efst á síðunni. Flipinn „Hafðu samband“ er á forsíðu, eins og á öllum öðrum síðum vefsins, en að auki er hann að finna í fæti vefsins.

Efst á forsíðunni er fjölnota og gríðarlega sveigjanlegt auglýsingasvæði sem notað er til að koma á framfæri þeim vörum, þjónustu, viðburðum og öðru sem hæst ber hverju sinni. 

Birta má á þessu svæði frá einni upp í fimm auglýsingar í flettiglugga (slider). Þar má birta texta, myndir, animation, myndbönd og í raun allt sem hugurinn girnist. 

Vextir, verðskrá, verðbréf og gengi gjaldmiðla

Einn megin tilgangur vefs Landsbankans er að veita neytendum og fjárfestum greiðan aðgang að upplýsingum um vaxtakjör bankans og verðlagningu á þjónustu hans. Helstu innláns- og útlánsvextir eru birtir á sérstöku flipastýrðu upplýsingasvæði hægra megin á forsíðunni auk verðskrár bankans. Skoða má vaxtatöflu og verðskrá í heild með því að smella á þar til gerðan hlekk.

Einnig má þarna sjá gengi helstu gjaldmiðla, bæði almennt gengi, seðlagengi, tollgengi og gengi VISA og MasterCard, auk upplýsinga um gengi verðbréfa í Kauphöll Íslands, bæði hlutabréfa og skuldabréfa ásamt ávöxtun sjóða Landsvaka. Fleiri gjaldmiðla, hlutabréf, skuldabréf og sjóði má síðan sjá með því að smella á hlekk sem vísar á rétta staði á markaðasvæði vefsins.


Framsetning og eftirfylgni

Umbrot síðna

Notast er við sveigjanlegt 12 dálka kerfi (kveikja/slökkva á dálkum) til að brjóta allt efni niður á síðurnar. Þetta býður upp á mikinn sveigjanleika í umbroti texta og annars efnis og er í raun ný nálgun við framsetningu efnis á vef.

Gagnaveitur

Nálgast má ákveðin gögn á landsbankinn.is í gegnum forritunarskilflöt (API), s.s. XML fyrir gengi (stundargengi og þróun) og beintenging við bókhald (B2B).

Leitarvélabestun (SEO)

Landsbankinn leggur áherslu á að forritun, uppsetning og texti á síðum henti vel fyrir leitarvélar til að þær skili vefnum sem bestum niðurstöðum. Notast er við Google Webmaster Tools til að fara reglulega yfir vefinn og hjálpa Google við að index-a vefinn.


Linkatékk

Notast er við Weblink Validator sem keyrir reglulega á alla hlekki á vefnum og skilar yfirliti yfir brotna hlekki sem lagaðir eru jafnóðum.

Hliðarvefsvæði

Jóladagatal Sprotanna

Í desember á hverju ári birtist Jóladagatal Sprotanna á vef Landsbankans. Nýr kafli birtist á hverjum degi frá 1. desember fram að jólum. Sagan er einnig sögð á táknmáli. Höfundur og sögumaður er Felix Bergsson en Kári Gunnarsson myndskreytti. Lögin eru eftir Jón Ólafsson.

Raunveruleikurinn

Markmiðið með Raunveruleik Landsbankans er að stuðla að auknu fjármálalæsi meðal ungmenna og svara þörf fyrir vandað námsefni fyrir unglinga í lífsleikni með áherslu á fjármála- og neytendafræðslu. Raunveruleikurinn er gagnvirkur hermileikur, hannaður sem fjármála- og neytendafræðsla í efsta bekk grunnskóla.