Sameiginlegar reglur fjármálafyrirtækja um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja (SFF)
Samþykktar hafa verið á vettvangi Samtaka fjármálafyrirtækja sameiginlegar reglur fjármálafyrirtækja um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja. Reglurnar hafa hlotið samþykki Fjármálaeftirlitsins með bréfi 2. mars 2010 eins og kveðið er á um í lögum nr. 107/2009. Í reglunum er fjallað um úrlausn margra þeirra mála sem efst hafa verið á baugi að undanförnu. Við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja mun Landsbankinn styðjast við þessar reglur og gera þá kröfu að fyrirtæki uppfylli þau skilyrði og skilmála sem þar eru sett fram.
Þessar sameiginlegu reglur koma til viðbótar neðangreindum vinnureglum Landsbankans sem unnið hefur verið eftir frá því síðla árs 2008.
Sameiginlegar reglur Samtaka fjármálafyrirtækja
Úrræði Landsbankans til aðstoðar fyrirtækjum í erfiðleikum
17. september 2010
Prentvæn útgáfa
Inngangur
Aðgerðum í þágu fyrirtækja í greiðsluerfiðleikum er skipt í fjóra flokka fyrir utan hefðbundin úrræði greiðslustöðvunar og nauðasamnings. Þar er m.a. horft til eðlis og stærðar fyrirtækja ásamt getu núverandi eigenda til að leggja fram nýtt eigið fé í reksturinn.
Ljóst er að upp geta komið tilvik sem ekki eru talin falla í neinn þessara flokka og verður þá að leita annarra leiða við úrlausn þeirra. Landsbankinn setur ýmis skilyrði og skilmála í tengslum við fjárhagslega endurskipulagningu sem m.a. koma fram í 2., 5. og 7. kafla í sameiginlegum reglum fjármálafyrirtækja um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja. Bankinn getur einnig sett frekari skilyrði en þau sem fram koma í sameiginlegu reglunum,, t.a.m. skilyrði um að fá hlutdeild í framtíðar söluhagnaði eigna innan 3-5 ára. Eitt af markmiðum endurskipulagningarinnar er að fyrirtæki verði greiðsluhæft til lengri tíma. Ef bankinn telur vafa leika á að hægt sé að ná því markmiði þá getur hann hafnað tillögu um endurskipulagningu.
A. Frysting– greiðsla á vöxtum ásamt hluta afborgana
Fyrirtækjum sem geta einungis greitt vexti og hluta afborgana m.v. uppfærð vaxtakjör stendur til boða að fá greiðslufrest á hluta eða öllum afborgunum lána í 12-24 mánuði. Miða skal við að afborganir séu greiddar eins og kostur er og að skuldsetning verði í þeirri erlendu mynt sem endurspeglar best tekjur fyrirtækjanna. Til lengri tíma litið verða fyrirtækin að geta staðið við allar skuldbindingar sínar við bankann m.v. eðlilegt endurgreiðsluferli. .
B. Niðurfærsla á skuldum fyrirtækis á móti eiginfjárframlagi eiganda
Landsbankinn er reiðubúinn að færa niður skuldir fyrirtækja gegn því að eigendur leggi fyrirtækinu til nýtt hlutafé. Samhliða þessu kemur til greina að breyta skuldum í hlutafé eða víkjandi lán. Við endurskipulagningu skulda skal tryggt að nýtt eigið fé frá eigendum og eftirstöðvar skulda séu að mati bankans að lágmarki 100% af virði endurmetinna eigna, eða af verðmæti fyrirtækis með hliðsjón af áætluðu sjóðstreymi* eftir því hvort er hærra, að viðbættu virði annarra trygginga. Nýtt eigið fé greiðist inn á lán fyrirtækis hjá bankanum. Miða skal við að skuldir eftir niðurfellingu og eiginfjárframlag eiganda séu að jafnaði ekki hærri en 90% af eignavirði eða heildarvirði, hvort sem er hærra og verði í þeim myntum sem endurspegla tekjur fyrirtækjanna. Fyrir hverja krónu eigin fjár sem eigendur leggja fyrirtækinu til umfram 10% af heildarvirði eða eignavirði, lækka skuldir fyrirtækis um 1,5 krónur á meðan skuldir eru umfram 70% af heildarvirði eða eignavirði. Miðað skal við að niðurfærsla verði ekki hærri en 60% af höfuðstól lána. Kjör og lánstími á lánum eftir endurskipulagningu eru samkvæmt gjaldskrá bankans hverju sinni og taka mið af undirliggjandi veðum. Stefna skal að því að eins mikill hluti lána fyrirtækis og mögulegt er sé í endurgreiðsluferli en ljóst er að í sumum tilfellum þarf hluti lána að vera á formi eingreiðsluláns.
*Heildarvirði
C. Niðurfærsla á skuldum án eiginfjárframlags eiganda
Hjá fyrirtækjum í greiðsluerfiðleikum með vaxtaberandi skuldir undir 750 m.kr, kemur til greina að bankinn færi niður skuldir fyrirtækis að hluta, án eiginfjárframlags eiganda, enda sé ljóst að eigandi geti ekki reitt fram nýtt eigið fé. Við slíka endurskipulagningu skal tryggt að eftirstöðvar skulda séu að mati bankans að lágmarki 100% af virði endurmetinna eigna eða af heildarvirði, eftir því hvort er hærra, að viðbættu virði annarra trygginga. Þetta á sérstaklega við hjá fyrirtækjum þar sem reksturinn byggir á vinnuframlagi eigenda sjálfra og bankinn telur ekki raunhæft að hann eignist hlutafé fyrirtækisins. Miðað skal við að niðurfærsla verið ekki hærri en 60% af höfuðstól lána. Kjör og lánstími á lánum eftir endurskipulagningu eru samkvæmt gjaldskrá bankans hverju sinni og taka mið af undirliggjandi veðum. Reynt er að hafa sem mest af lánum fyrirtækis í endurgreiðsluferli en ljóst er að þegar ekkert eigið fé kemur frá eigendum þá þarf hluti lána í sumum tilvikum að vera á formi eingreiðsluláns.
D. Yfirtaka Landsbankans á hlutafé í fyrirtæki í samráði við eigendur
Verði engin ofangreindra leiða til að bæta stöðu fyrirtækisins getur heppilegasta lausnin verið að Landsbankinn eignist fyrirtækið með samningum við eigendur, annað hvort einn eða með öðrum stórum kröfuhöfum. Hlutafé fyrri eigenda tapast allt, ,enda verðlaust þegar hér er komið. Þegar þessari aðferð er beitt er markmið bankans að bjarga verðmætum sem myndu ella tapast við gjaldþrot og tryggja að sem mest fáist upp í skuldir þegar fyrirtækið verður selt. Í sumum tilvikum getur sú óvissa sem kann að ríkja um aðrar skuldbindingar þó komið í veg fyrir að hægt sé að breyta skuldum í hlutafé.
Prentvæn útgáfa
Fyrirvari
Þær leiðbeiningar sem fram koma í skjali þessu eru ætlaðar starfsfólki NBI hf. (hér eftir nefndur "Landsbankinn" eða "bankinn") og veita fyrirtækjum ekki einhliða rétt til fyrirgreiðslu eða aðstoðar vegna greiðsluerfiðleika hjá bankanum. Fyrirgreiðsla eða aðstoð við fyrirtæki í greiðsluerfiðleikum er háð mati Landsbankans hverju sinni og reynir þar bæði á hlutlæg og huglæg atriði.
Fyrirgreiðsla eða aðstoð Landsbankans við fyrirtæki er bundin því skilyrði að hún sé í samræmi við reglur bankans og samræmist hagsmunum aðila.
Landsbankinn áskilur sér rétt til að leggja til grundvallar réttarstöðu sinni þá samninga sem gerðir hafa verið við fyrirtæki í greiðsluerfiðleikum. Breytingar á samningum eru háðar því að samkomulag náist milli viðkomandi fyrirtækis og Landsbankans.
Úrlausn á fjárhagsvanda fyrirtækja er fyrst og fremst á ábyrgð fyrirtækjanna sjálfra en með leiðbeiningum þessum er Landsbankanum gert kleift að aðstoða fyrirtæki í greiðsluerfiðleikum eftir því sem hagsmunir hans leyfa og kostur er.
Frekari upplýsingar
- Stjórnendum og/eða eigendum fyrirtækja er bent á að hafa samband við viðskiptatengil sinn óski þeir eftir frekari upplýsingum.