Ný stefna

Þann 2. október 2010 var ný stefna Landsbankans kynnt og um leið tók nýtt skipurit gildi.

Landsbankinn þinn

Þann 2. október 2010 var ný stefna Landsbankans kynnt og um leið tók nýtt skipurit gildi.

Í stefnunni kemur fram að bankinn ætli sér að vera hliðstæður bestu bönkum á Norðurlöndum innan fimm ára. Stefnan er sóknarmiðuð og inniheldur kröftuga framtíðarsýn um fyrirmyndar vinnustað og banka sem er í senn hreyfiafl og kjölfesta í íslensku efnahags- og atvinnulífi.

Landsbankinn ætlar sér að vera í forystuhlutverki í endurreisn íslensks samfélags og verður stærsta verkefni bankans árið 2011 að vinna með viðskiptavinum að endurskipulagningu skulda, jafnt heimila og fyrirtækja. Þessi verkefni setja sterkan svip á skipulag bankans en á síðasta ári tók til starfa Ráðgjafastofa einstaklinga sem verður miðstöð upplýsingaöflunar og úrvinnsla skuldavanda heimila. Fyrirtækjum verður þjónað í gegnum sviðið Endurskipulagningu eigna hvar skuldir lífvænlegra fyrirtækja verða endurskiplagðar svo þau geti haldið áfram starfsemi og skapað tekjur og störf.

Nýtt skipurit

Nýju skipuriti bankans er ætlað að endurspegla stefnu og áherslur bankans. Viðskipta- og afkomueiningar fá aukið vægi, þar sem lykiláhersla er lögð á þjónustu við viðskiptavini, en við þær styðja öflugar miðlægar einingar. 

Viðskiptasviðin eru fimm talsins: Viðskiptabanki, Fyrirtækjabanki, Fjárstýring og markaðir, Eignastýring og Endurskipulagning eigna. Önnur meginsviðin eru Áhættustýring, Fjármál og Þróun. 

Með þessum hætti vilja forsvarsmenn Landsbankans leggja áherslu á viljann til að Landsbankinn verði hreyfiafl í íslensku samfélagi sem vinnur náið með einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum að uppbyggingu íslensks samfélags.

Skipurit Landsbankans


Meginþættir stefnunnar

Einkunnarorð hinnar nýju stefnu bankans eru hlustum, lærum og þjónum og í þeim endurspeglast sú mikla áherslubreyting sem fyrirhuguð er í rekstri hans. Þung áhersla verður á að hlusta á viðskiptavini, læra af reynslunni og þá staðreynd að Landsbankinn er umfram allt þjónustufyrirtæki. Stefnan hvílir á fjórum meginstoðum, eða helstu áherslum, sem kallast áhugi, áreiðanleiki, ábyrgð og ávinningur.

Markmið bankans byggjast á stefnunni og eru ófrávíkjanlegur hluti hennar. Helstu markmiðin flokkast undir fjögur yfirheiti. Það fyrsta er "öflug liðsheild", þar sem lögð er áhersla á að starfsmenn komi fram sem ein heild sem vinnur ötullega að sama markmiði eftir skilgreindum leiðum. "Traustir innviðir" vísa til þess markmiðs að ná fram hagfelldu hlutfalli á milli kostnaðar og tekna og jafnframt að sjá vanskil viðskiptavina lækka verulega. Þriðja yfirmarkmiðið er "ánægðir viðskiptavinir" og undir það flokkast m.a. úrvinnsla skuldamála fyrirtækja og heimila. Síðast en ekki síst er fjórða yfirheitið, "ávinningur fyrir samfélagið", og undir það fellur traust, arðsemi og uppgjör við Landsbanka Íslands hf. Öll markmið eru sett þannig upp að hægt sé að mæla árangurinn með reglubundnum hætti.