Samkvæmt skipuriti bankans eru svið bankans sjö: Einstaklingssvið, Fyrirtækjasvið, Markaðir, Áhættustýring, Fjármál, Þróun og mannauður og Rekstur og upplýsingatækni.
Bankastjóri Landsbankans er Steinþór Pálsson.
Framkvæmdastjórar Landsbankans eru í stafrófsröð: Árni Þór Þorbjörnsson, Helgi T. Helgason, Hrefna Sigfinnsdóttir, Hreiðar Bjarnason, Jensína Kristín Böðvarsdóttir, Perla Ösp Ásgeirsdóttir og Ragnhildur Geirsdóttir.
Bankastjóri
Steinþór Pálsson
Steinþór Pálsson hefur langa reynslu af stjórnunarstörfum við banka og framleiðslufyrirtæki, bæði innanlands og erlendis, og mikla reynslu af breytingastjórnun og stefnumótun. Steinþór er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og með MBA gráðu frá Edinborgarháskóla.
Á árum áður gegndi hann stöðu framkvæmdastjóra lánasviðs Verzlunarbanka Íslands og varð síðar starfsmaður Íslandsbanka, m.a. sem forstöðumaður lánadeildar, fjárfestingarlána, útibúaþjónustu, áhættustýringar og fyrirtækjaþjónustu, auk þess sem hann var virkur í stefnumótunarstarfi Íslandsbanka og samrunaferli forvera hans. Hann var um hríð fjármála- og rekstrarstjóri líftæknifyrirtækisins Urður, Verðandi, Skuld, en starfaði síðan í átta ár hjá Actavis. Fyrst sem framkvæmdastjóri Actavis á Möltu, þá sem framkvæmdastjóri Actavis í Bandaríkjunum og á árunum 2008-2010 sem framkvæmdastjóri Actavis samstæðunnar á Íslandi á sviði stefnumótunar.
Steinþór er stjórnarformaður Hamla ehf. og situr í stjórn Samtaka fjármálafyrirtækja. Steinþór er formaður framkvæmdastjórnar, Áhættu- og fjármálanefndar og Lánanefndar auk þess að sitja í nefnd um upplýsingatækni bankans.
Steinþór tók við starfi bankastjóra í júní 2010.
Framkvæmdastjórar
Árni Þór Þorbjörnsson, Fyrirtæki
Árni er lögfræðingur frá Háskóla Íslands með diplóma í rekstrar- og viðskiptafræði. Hann hlaut löggildingu í Corporate Finance frá Securities & Investment Institute í London árið 2005.
Hann starfaði í Landsbanka Íslands hf. frá árinu 1996. Á fyrstu árunum annaðist hann almenn lögfræðistörf, ráðgjöf og málflutning. Árni var yfirlögfræðingur Fyrirtækjasviðs Landsbanka Íslands hf. til ársins 2008, en við stofnun Landsbankans hf. tók Árni við sem framkvæmdastjóri Fyrirtækjasviðs.
Árni situr í stjórnum Hamla ehf. og Mótus ehf. Hann á sæti í Lánanefnd.
Helgi Teitur Helgason, Einstaklingar
Helgi lauk embættisprófi í lögum frá Háskóla Íslands árið 1998 og hóf þá störf sem lögfræðingur og síðar lögmaður í Landsbankanum, þar sem hann annaðist almenn lögfræðistörf, innheimtu, ráðgjöf og málflutning. Helgi leiddi opnun skrifstofu Intrum og Lögheimtunnar á Akureyri vorið 2001 og starfaði þar sem svæðisstjóri og lögmaður á Norðurlandi til vorsins 2004, auk þess að veita stéttarfélögum á Akureyri og félagsmönnum þeirra lögmannsþjónustu.
Helgi var útibússtjóri Landsbankans á Akureyri frá árinu 2004 til 2010.
Helgi er stjórnarmaður í Mótus ehf. Hann á sæti í Lánanefnd, Öryggisnefnd og Ráðgjafaráði FSÍ.
Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, Markaðir
Hrefna er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi frá Tryggingaskólanum og löggildingarprófi í verðbréfaviðskiptum.
Hrefna starfaði sem sjóðstjóri hjá Arev Verðbréfafyrirtæki frá árinu 2007 þar til hún gekk til liðs við Landsbankann. Þá starfaði Hrefna sem forstöðumaður skráningarsviðs og sérfræðingur á því sviði hjá Kauphöll Íslands frá 1998-2006. Áður gegndi hún starfi forstöðumanns einstaklingsþjónustu hjá Fjárvangi og var starfsmaður á peningamálasviði Seðlabanka Íslands.
Hrefna hefur setið í stjórnum fjölda fyrirtækja bæði á Íslandi og erlendis
Hreiðar Bjarnason, Fjármál
Hreiðar er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands, með MSc gráðu í fjármálafræðum frá London Business School og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.
Hreiðar hóf störf í Landsbanka Íslands hf. árið 1998, fyrst sem sérfræðingur í Markaðsviðskiptum og síðar í Fjárstýringu. Hreiðar tók við sem framkvæmdastjóri Markaða og fjárstýringar Landsbankans hf. snemma árs 2010, en tók við stöðu sem framkvæmdastjóri Fjármála í ágúst 2012 og er auk þess staðgengill bankastjóra.
Hreiðar á sæti í Áhættu- og fjármálanefnd og er fulltrúi Landsbankans í stjórn Framtakssjóðs Íslands.
Jensína Kristín Böðvarsdóttir, Þróun og mannauður
Jensína er með BSc gráðu í auglýsingafræðum frá San Jose State University í Kaliforníu, Bandaríkjunum, og lauk MBA prófi með áherslu á neytendahegðun og markaðsfræði frá University of San Diego árið 1995.
Jensína starfaði áður hjá Símanum þar sem hún var forstöðumaður sölu á Einstaklingssviði frá árinu 2007. Jensína gegndi stöðu markaðsstjóra Globus frá árinu 2004-2007, var framkvæmdastjóri mannauðssviðs IMG á árunum 2002-2004, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar IMG frá 2001, starfsmannastjóri Norðurljósa 1999-2001 og tók þátt í mótun og uppbyggingu ráðningarþjónustu Gallup á árunum 1997-1999.
Jensína er stjórnarmaður í Frumtaki GP ehf. og varamaður í stjórn Framtakssjóðs Íslands. Hún starfar með Starfskjaranefnd.
Perla Ösp Ásgeirsdóttir, Áhættustýring
Perla er með MSc gráðu í fjármálum frá Háskólanum í Reykjavík.
Hún starfaði hjá Seðlabanka Íslands á árabilinu 2005-2010 og hjá Rannsóknarnefnd Alþingis árið 2009. Perla sinnti m.a. eftirliti með fjármálafyrirtækjum og mörkuðum hjá Seðlabanka Íslands og annaðist gerð áhættulíkana fyrir íslenskan fjármálamarkað. Perla var ráðin forstöðumaður Áhættustýringar Landsbankans í apríl 2010 og framkvæmdarstjóri í október.
Perla á sæti í Lánanefnd, Áhættu- og fjármálanefnd og Hagræðingarnefnd.
Ragnhildur Geirsdóttir, Rekstur og upplýsingatækni
Ragnhildur lauk CS prófi í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1995, MSc prófi í iðnaðarverkfræði frá University of Wisconsin, Madison árið 1996 og MSc prófi í viðskiptafræði frá sama skóla árið 1998.
Ragnhildur starfaði sem sérfræðingur hjá Fjárfestingabanka atvinnulífsins (FBA) 1998–1999. Á árunum 1999–2005 vann hún hjá Flugleiðum hf./FL Group hf., fyrst sem verkefnastjóri í stefnumótun, svo sem framkvæmdastjóri Rekstrarstýringar og loks sem forstjóri. Ragnhildur var forstjóri Promens hf. 2006–2011.
Ragnhildur hefur setið í stjórn fjölda fyrirtækja, bæði á Íslandi og erlendis. Ragnhildur á sæti í Áhættu- og fjármálanefnd og situr í stjórn Hamla ehf.