Bankaráð Landsbankans

Bankaráð Landsbankans er kjörið á aðalfundi til árs í senn og eru kjörnir 7 aðalmenn og 2 til vara.

Bankaráð hefur yfirumsjón með starfsemi bankans í samræmi við lög, reglugerðir og samþykktir. Bankaráð mótar almenna stefnu bankans og skal annast um að skipulag og starfsemi bankans sé jafnan í réttu horfi. Bankaráð skal einnig hafa með höndum almennt eftirlit með rekstri bankans og að nægilegt eftirlit sé haft með bókhaldi og meðferð fjármuna félagsins.

Starfsreglur bankaráðs

Sérstakar starfsnefndir bankaráðs

Bankaráð Landsbankans skipa

Aðalmenn

Tryggvi Pálsson, formaður

Tryggi Pálsson hefur víðtæka reynslu á fjármálamarkaði og hefur gegnt leiðandi hlutverki í rekstri fjölmargra fjármálafyrirtækja. Hann lauk prófi frá Viðskiptadeild Háskóla Íslands og meistaragráðu í þjóðhagfræði frá London School of Economics. Tryggvi er nú sjálfstætt starfandi við ráðgjöf, kennslu og stjórnarstörf. Hann starfaði hjá Landsbankanum sem forstöðumaður hagfræði- og áætlanadeildar 1976-1984 og var framkvæmdastjóri fjármálasviðs 1984-1988. Árið 1998 var hann ráðinn bankastjóri Verslunarbanka Íslands, en gegndi síðan lykilhlutverki í samruna fjögurra banka við stofnun Íslandsbanka 1990. Hann var bankastjóri og framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka á árunum 1990-2000. Tryggvi var ráðgjafi bankastjórnar Seðlabankans 2000-2001 og framkvæmdastjóri fjármálasviðs bankans 2001-2011. Tryggi hefur gegnt margvíslegum stjórnarstörfum á fjármálamarkaði svo sem fyrir ISB Holding ehf., Fjármálaeftirlitið, Reiknistofu bankanna, Kauphöll Íslands, Verðbréfaskráningu Íslands hf., Sambands íslenskra viðskiptabanka, Glitni hf. (eignarleigu), Kreditkort, Fjárfestingarfélag Íslands hf. og Féfang hf. Einnig hefur hann setið í fjölmörgum opinberum nefndum, sinnt margvíslegum félagsstörfum svo og annast kennslu í þjóðhagfræðum og bankafræðum á háskólastigi.

Tryggvi gegnir formennsku í tveimur undirnefndum bankaráðs, Starfskjaranefnd og Framtíðarnefnd.

Eva Sóley Guðbjörnsdóttir, varaformaður

Eva Sóley Guðbjörnsdóttir er sjálfstætt starfandi við ráðgjöf og stjórnarstörf og er jafnframt stundakennari í meistaranámi í fjármálaverkfræði við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík. Hún útskrifaðist með meistaragráðu í fjármálaverkfræði frá Columbia University í Bandaríkjunum árið 2006 en áður stundaði hún nám í hagverkfræði og hagfræði við sama skóla. Þá hefur hún lokið löggildingarprófi í verðbréfamiðlun. Eva Sóley starfaði áður hjá Kaupþingi hf. á árunum 2003-2008, m.a. í fjárstýringu, fjármögnun, á fyrirtækjasviði og í fyrirtækjaráðgjöf ásamt því að sinna ýmsum sérverkefnum fyrir yfirstjórn bankans. Þá gegndi hún starfi framkvæmdastjóra kröfuhafasviðs og lánastýringar Kaupþings frá 2008 – 2009 og var framkvæmdastjóri fjármálasviðs frá 2009 -2011 þar sem hún var m.a. ábyrg fyrir reikningshaldi og fjárhagslegu uppgjöri félagsins, lána- og verðbréfastýringu, lausafjárstýringu, uppgjöri afleiðubókar, dótturfélögum og rekstrarlegum málefnum félagsins. Hún var varamaður í stjórn Íslandsbanka frá 2012-2013.

Eva Sóley situr í tveimur undirnefndum bankaráðs, Endurskoðunar- og áhættunefnd og Framtíðarnefnd.

Danielle Pamela Neben

Danielle Pamela Neben hefur starfað hjá HSBC bankanum, sem er einn stærsti banki heims, allt frá árinu 1993 í sjö löndum m.a. í Bretlandi, Þýskalandi, Tævan og Singapore. Hún lauk háskólanámi í viðskiptafræði frá McGill University í Kanada með áherslu á fjármál. Danielle hefur verið hluti af framkvæmdastjórn HSBC Trinkaus & Burkhardt (Int.) SA í Lúxemborg frá 2012 sem framkvæmdastjóri á rekstrarsviði. Áður var hún í ýmsum stjórnunarstörfum innan HSBC bankans m.a. á sviði verkefnastjórnunar, viðskiptatengsla, viðskiptabankaþjónustu, fyrirtækjaþjónustu, fjárfestatengsla og innheimtu útlána.

Danielle situr í tveimur undirnefndum bankaráðs, Endurskoðunar- og áhættunefnd og Framtíðarnefnd.

Danielle mun hefja störf þann 22. júlí nk.


Helga Björk Eiríksdóttir

Helga Björk Eiríksdóttir starfar sem fjárfesta- og almannatengill hjá Marel. Hún hefur jafnframt gengt formennsku í stjórn Sparisjóðs Svarfdæla. Helga Björk er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Edinborg. Hún útskrifaðist með BA-gráðu í ensku og ítölsku frá Háskóla Íslands 1997 og lauk prófi í hagnýtri fjölmiðlun 1999 frá sama skóla. Helga Björk lauk prófi í markaðs- og útflutningsfræði frá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands 2002 og hefur lagt stund á verðbréfaviðskiptanám við Háskólann í Reykjavík. Á árunum 2010-2012 starfaði hún við sjálfstæða ráðgjöf. Hún hafði umsjón með samskiptamálum fyrir skilanefnd og slitastjórn Kaupþings hf. á árunum 2009 og 2010. Áður starfaði Helga Björk m.a. sem markaðs- og kynningarstjóri Nasdaq OMX kauphallarinnar á Íslandi um átta ára skeið. Helga Björk hefur einnig starfað við byggingarstarfsemi, fjölmiðla, sinnt ýmsum öðrum störfum og var lengi starfsmaður Sparisjóðs Svarfdæla á Dalvík.

Helga Björk situr í Starfskjaranefnd bankaráðs.

Jón Sigurðsson

Jón Sigurðsson starfar sem framkvæmdastjóri innkaupasviðs hjá Promens, en áður var hann framkvæmdastjóri fjármálasviðs félagsins frá stofnun þess til ársins 2007. Hann er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Á árunum 1999-2004 starfaði Jón sem forstöðumaður fjárfestingarsviðs hjá Framtaki fjárfestingarbanka. Jón starfaði fyrir Coca-Cola árin 1991-1999, fyrst sem fjármálastjóri Vífilfells og síðar fyrir svæðisskrifstofu Coca-Cola Company í Noregi, fyrst sem yfirmaður hagdeildar og síðan yfirmaður á þróunar- og fjárfestingarsviði. Á árunum 1986-1991 starfaði Jón sem fjármálastjóri Hans Petersen, en þar á undan sem rekstrarráðgjafi hjá Hagvangi. Jón hefur setið í stjórnum fjölmargra innlendra og erlendra fyrirtækja. Hann hefur verið varamaður í bankaráði síðan í apríl 2010. Horn fjárfestingarfélag hf., dótturfélag Landsbankans, á 49,9% hlut í Promens.

Jón situr í Framtíðarnefnd bankaráðs.

Kristján Davíðsson

Kristján Þ. Davíðsson hefur starfað sem framkvæmdastjóri Isder ehf. síðan 2009. Hann er með skipstjórnarpróf frá Stýrimannaskóla Íslands og meistaragráðu í sjávarútvegsfræði frá Háskólanum í Tromsö í Noregi. Áður var hann framkvæmdastjóri skilanefndar Glitnis banka hf. frá 2008-2009, en hann var um árabil starfsmaður Glitnis/Íslandsbanka og starfaði þar meðal annars sem framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs og sem forstöðumaður sjávarútvegsviðskipta á alþjóðasviði bankans. Hann hefur starfað hjá SÍF hf. og Marel hf. við sölu og markaðsstörf og einnig sem forstjóri Granda hf. og aðstoðarforstjóri HB Granda hf. Kristján situr í stjórn norska útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækisins Copeinca ASA og einnig í stjórnum Vaka fiskeldiskerfa hf. og Völku hf. Hann er kjörræðismaður Brasilíu á Íslandi. Hann hefur verið varamaður í bankaráði Landsbankans frá því í apríl 2011.

Kristján situr í Starfskjaranefnd bankaráðs.

Þórdís Ingadóttir

Þórdís Ingadóttir er dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík og sinnir þar kennslu jafnt sem rannsóknum. Hún er lögfræðingur (cand. jur.) frá lagadeild Háskóla Íslands og með LL.M gráðu í alþjóðalögum frá New York University School of Law. Á árunum 1999-2003 starfaði hún hjá New York University og á árinu 2004 hjá lagaskrifstofu dóms- og kirkjumálaráðuneytis. Þórdís hefur gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum, m.a. fyrir stjórnvöld, alþjóðastofnanir, háskóla og félagasamtök. Þórdís hefur setið í bankaráði Landsbankans frá apríl 2010.

Þórdís gegnir formennsku í Endurskoðunar- og áhættunefnd bankaráðs.

Varamenn

Helga Loftsdóttir

Helga Loftsdóttir er eignaraðili að og hefur rekið Þ & L lögmannsstofu frá árinu 1997. Hún er lögfræðingur (cand.jur.) frá lagadeild Háskóla Íslands og hefur haft réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi frá árinu 1997. Á árunum 1991-1994 starfaði Helga á lögmannsstofunni Garðastræti 17 sf. og sem lögfræðingur hjá Ríkisskattstjóra á árunum 1994-1997. Helga sat í stjórn SpKef sparisjóðs frá stofnun sjóðsins árið 2010 þar til hann var yfirtekinn af Landsbankanum árið 2011. Helga hefur verið varamaður í bankaráði Landsbankans frá 28. apríl 2011.

Tinna Laufey Ásgeirsdóttir

Tinna Laufey Ásgeirsdóttir hefur stundað kennslu og rannsóknir hérlendis og erlendis og gegnir nú lektorsstöðu við Háskóla Íslands. Hún lauk doktorsprófi í hagfræði frá University of Miami í Bandaríkjunum árið 2006, en þar áður stundaði hún meistaranám í hagfræði við sama skóla og sagnfræði við Háskóla Íslands. Tinna Laufey hefur skrifað fjölda greina í vísindatímarit, auk fræðibóka og bókakafla á íslensku og ensku. Hún hefur jafnframt sinnt margvíslegum ráðgjafastörfum fyrir fyrirtæki og stofnanir. Tinna Laufey gegnir ýmsum stjórnunarstörfum sem tengjast kennslu og vísindum og situr meðal annars í Háskólaráði Háskóla Íslands. Tinna Laufey hefur verið varamaður í bankaráði Landsbankans frá 28. mars 2012.