Sjóðir

Fólk með hund úti í náttúrunni

Áhrifa­rík leið til ávöxt­un­ar

  • Ein­falt að kaupa og selja í appi og net­banka
  • 25% af­slátt­ur af gjaldi við kaup í appi og net­banka
  • 100% af­slátt­ur af gjaldi við kaup í mán­að­ar­legri áskrift
  • Eng­inn skatt­ur greidd­ur af hagn­aði fyrr en þú sel­ur
Hvers vegna að spara í sjóðum?
Það er einfalt að spara í sjóðum. Þannig dreifir þú áhættunni og eykur ávöxtunarmöguleika sparnaðar þíns.
Verðbréfaviðskipti á netinu
Í appi og netbanka getur þú átt viðskipti með sjóði og hlutabréf, ferlið er einfalt og þú færð 25% afslátt af gjaldi við kaup.
Mánaðarleg áskrift
Með mánaðarlegri áskrift í sjóðum greiðir þú ekkert gjald við kaup og greiðir lægra afgreiðslugjald. Það er auðvelt að stofna áskrift í appi og netbanka.

Sjóðir

Gengi sjóða og ávöxtunartölur uppfærast á hverjum viðskiptadegi.

Sjóðirnir eru reknir af Landsbréfum hf., rekstrarfélagi með starfsleyfi á Íslandi og heyrir undir eftirlit Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. Við bendum þér á að kynna þér útboðslýsingu, lykilupplýsingar og upplýsingablöð sjóðanna sem finna má undir hverjum sjóði. Einnig getur þú kynnt þér skilmála, útdrátt um hagsmunaárekstra og áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga.

Upplýsingar á þessari síðu eru samkvæmt bestu vitund Landsbankans og ætlaðar til fróðleiks, en ekki sem grundvöllur viðskipta. Landsbankinn ber ekki ábyrgð á hugsanlegum villum eða töfum upplýsinga og/eða ákvörðunum byggðum á þeim. Gögn birtast með 15 mínútna seinkun.

Áhætta fylgir ávallt fjárfestingu í sjóðum þar sem gengi þeirra getur bæði hækkað og lækkað vegna verðbreytinga á eignum sjóðanna og vegna gengisflökts gjaldmiðla þegar eignir sjóða eru í erlendum gjaldmiðlum. Ávöxtun í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur og fjárfestar kunna að fá minna til baka en upphaflega var fjárfest fyrir.
Markaðir

Verðbréfaviðskipti í appi og netbanka

Í appinu og netbankanum getur þú sent beiðni um viðskipti með innlend hlutabréf og sjóði Landsbréfa hvar og hvenær sem er. Þú getur einnig fylgst með framgangi viðskiptanna, séð yfirlit yfir verðbréfaeign og viðskiptasöguna.

Mánaðarleg áskrift í sjóðum

Með mánaðarlegri áskrift í sjóð greiðir þú ekkert gjald við kaup og greiðir lægra afgreiðslugjald. Lágmarksupphæð er 5.000 kr.

Stúlkur á hlaupahjólum

Við stækkum gjöfina

Fermingarbörn og jafnaldrar fá 6.000 kr. mótframlag frá okkur þegar þau kaupa fyrir 30.000 kr. eða meira í verðbréfasjóði.

En það er ekki allt og sumt! Ef þau spara meira fá þau 5% mótframlag á það sem er umfram 30.000 kr. Mótframlagið getur að hámarki verið 16.000 kr, en þá er sparnaðarupphæðin 230.000 kr.

Við erum til staðar

Þú getur alltaf leitað til ráðgjafa okkar í Verðbréfa- og lífeyrisþjónustu sem aðstoða þig við að byggja upp eignasafn. Þú getur einnig sent tölvupóst á vl@landsbankinn.is eða hringt í 410 4040.

Friðbert G. Gunnarsson

Friðbert G. Gunnarsson

Sölustjóri
Fridbert.G.Gunnarsson@landsbankinn.is410 7166
Gústav Gústavsson

Gústav Gústavsson

Sölustjóri
Gustav.Gustavsson@landsbankinn.is410 6221
Jóhanna M. Jónsdóttir

Jóhanna M. Jónsdóttir

Sölustjóri
Johanna.M.Jonsdottir@landsbankinn.is410 7169
Gott að vita áður en þú kaupir í sjóði

Fjárfesting í verðbréfa- og fjárfestingarsjóðum er vinsæl leið til að ávaxta sparifé. Úrvalið af sjóðum er mikið og mikilvægt að finna sjóðinn sem hentar þínum fjárhagslegum markmiðum.

Fyrstu skrefin í verðbréfafjárfestingum

Hver eru helstu atriðin sem gott er að vita um verðbréfafjárfestingar? Í stuttum fyrirlestrum förum við yfir nokkur lykilatriði og mikilvægi þess að vera meðvituð um áhættuna.

Fleiri greinar um verðbréfaviðskipti

Hér má finna fleiri fræðslugreinar þar sem farið er yfir ýmsa þætti er koma að sjóða- og hlutabréfaviðskiptum.

Algengar spurningar

Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina

Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.

Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur