Landsbankinn kynnir afreksstyrki en þeim er ætlað að styðja við bakið á afreksfólki sem iðkar einstaklingsíþróttir. Einnig verða veittir styrkir til ungs og efnilegs íþróttafólks sem á framtíðina fyrir sér. Styrkirnir nema alls 3.000.000 kr. og skiptast þannig:
- Afreksstyrkir – 6-10 styrkir að upphæð 300.000-500.000 kr.
- Afreksfólk framtíðarinnar – 2-3 styrkir að upphæð 100.000-200.000 kr.
Forsendur
- Umsækjandi tekur þátt í einstaklings- eða paraíþrótt.
- Framúrskarandi árangur á Íslandi og alþjóðlegum í sinni grein er nauðsynlegur, t.a.m. hafa náð lágmarki til að keppa á Norðurlandamóti, Evrópumóti, heimsmeistaramóti eða Ólympíuleikum.
- Umsækjendur skulu vera fyrirmyndir annarra íþróttamanna og hafa skýra framtíðarsýn um íþróttaiðkun sína og skýrar hugmyndir um nýtingu styrkfjárins.
- Umsækjendur um afreksstyrki framtíðarinnar skulu vera yngri en 20 ára og hafa náð framúrskarandi árangri í sínum aldursflokki.