Það er markmið Landsbankans að tryggja jafnrétti innan bankans og að hver starfsmaður sé metinn á eigin forsendum. Landsbankinn fylgir viðmiðum UN Global Compact um mannréttindi og starfsréttindi.
Jafnréttisstefna Landsbankans er órofa heild við starfsmannastefnu bankans. Bankinn leggur áherslu á að ráða til sín og halda í framúrskarandi starfsfólk og efla það í störfum sínum. Með jafnréttisstefnu Landsbankans vill bankinn leggja áherslu á að lykilforsendur fyrir framúrskarandi árangri og góðum vinnustað séu þær að hver starfsmaður sé metinn á eigin forsendum og að allir eigi jafna möguleika óháð kynferði, aldri, uppruna, kynhneigð, fötlun, trúarbrögðum eða annarrar menningarlegrar stöðu.
Landsbankinn hefur unnið markvisst að því að efla jafnræði innan bankans undanfarið ár. Bankinn setti sér sömu markmið og sett voru í samstarfssamningi Félags kvenna í atvinnurekstri, Samtaka atvinnulífs og Viðskiptaráðs Íslands frá maí 2009, þar sem tryggt skal að hlutur hvors kyns verði ekki undir 40% í forystusveit fyrirtækja.
Hlutfall kynja í framkvæmdastjórn Landsbankans og dótturfélaga bankans hefur nú þegar verið jafnað.
Jafnréttisnefnd er starfrækt innan bankans og hefur yfirsýn yfir lög og reglur sem snúa að jafnréttismálum. Bankinn leitast við að taka upp jafnlaunavottun í samstarfi við ytri endurskoðendur bankans.
Landsbankinn hefur skrifað undir Jafnréttissáttmálann (Women‘s Empowerment Principles – Equality means Business), alþjóðlegt átak UN Women og UN Global Compact. Með undirskriftinni skuldbindur Landsbankinn sig til að vinna að bættum jafnréttismálum innan fyrirtækisins og sýna samfélagslega ábyrgð. Í sáttmálanum eru sjö viðmið sem höfð eru að leiðarljósi til þess að efla konur innan fyrirtækja og til að auka þátt þeirra í atvinnulífinu.