Bandarískir markaðir (NYSE, AMEX og NASDAQ)

Allir viðskiptavinir Saxo Privatbank geta stundað viðskipti á bandarísku hlutbréfamörkuðunum NYSE, AMEX og NASDAQ.

Opnunartími
13:30 - 20:00 að íslenskum tíma (sumartími)

Um kauphöllina í New York (NYSE)
Kauphöllin í New York er stærsti hlutabréfamarkaður í heimi með um 2.800 fyrirtæki skráð. Þessi fyrirtæki eru þverskurður af bandarískum markaði , flest leiðandi í sinni grein.

Um AMEX
AMEX kauphöllin er stærsti markaður heims með vísitölusjóði (ETFs og HOLDRS), hlutabréfasjóði og samsettar vörur (structured products). Meðal ETF sjóða sem skráðir eru á AMEX eru QQQ (Nasdaq 100), SPY (S&P 500) og DIA (Dow Jones).

NASDAQ
NASDAQ er stærsti rafræni hlutabréfamarkaðurinn í Bandaríkjunum með um 3.300 fyrirtæki skráð. Skráð fyrirtæki á NASDAQ markaðinum eru úr öllum geirum viðskiptalífsins, þ.m.t. tæknifyrirtæki, smásölufyrirtæki, fjarskiptafyrirtæki, fjármálafyrirtæki, samgöngufyrirtæki og líftæknifyrirtæki.

Kynntu þér málið