- Efnahagsmál - Hagsjá
Atvinnuleysi hækkar milli mánaða
Atvinnulausum fækkar hinsvegar milli júlí og ágúst
Samkvæmt tölum Vinnumálastofnunnar er atvinnuleysi nú 6,7% á landinu öllu og hækkaði það um 0,1% á milli mánaða. Meðalfjöldi atvinnulausra dróst hinsvegar saman á milli mánaða um 129. Hlutfall atvinnulausra hækkar vegna árstíðarsveiflu í áætluðu vinnuafli sem stafar af því að á haustin fækkar jafnan á vinnumarkaðnum þegar skólar hefjast og fólk streymir í nám. Á höfuðborgarsvæðinu mælist atvinnuleysi 7,7% en 5% á landsbyggðinni. Mest mælist atvinnuleysi á Suðurnesjum, 10,4% en minnst á Norðurlandi vestra, 2,2%.
Annan mánuðinn í röð bárust engar tilkynningar um hópuppsagnir til Vinnumálastofnunar en breyting verður núna í september þar sem Arion banki tilkynnti í dag að hann hyggðist segja upp 57 manns. Alls hefur 500 einstaklingum verið sagt upp störfum í 16 hópuppsögnum í ár.
Töluverð árstíðabundin sveifla er í atvinnuleysi á Íslandi. Framboð atvinnu er meira á sumrin og einnig er árstíðarbundin breyting á stærð vinnuafls. Þess vegna fæst betri mynd á stöðuna á vinnumarkaði með því að bera saman atvinnuleysistölur milli ára. Atvinnuleysið jókst um 0,1% á milli mánaða en þegar litið er á árstaktinn sést að atvinnuleysi hefur dregist saman um 0,6% á milli ára. Atvinnuleysi karla dregst saman um 0,8% á milli ára og kvenna um 0,4%. Þó svo að atvinnuleysi fari minnkandi er það enn hátt á íslenskan mælikvarða.
Fjöldi atvinnulausra á skrá voru 11.423 að meðaltali í júlí og er það fækkun um 281 frá því í júní. Körlum fækkaði um 343 (6,5% atvinnuleysi) og konum um 62 (6,8% atvinnuleysi). Ástæðuna fyrir því að körlum fækkar meira en konum er að finna í því að árstíðabundin aukning er í störfum sem karlar vinna að jafnaði s.s. í byggingariðnaði.
Langtímaatvinnuleysi jókst í kjölfar efnahagshrunsins haustið 2008. Fjöldi þeirra sem hafa verið atvinnulausir í meira en 6 mánuði dróst örlítið saman á milli mánaða og er nú 7.528 manns. Þeir sem hafa verið atvinnulausir í meira en 6 mánuði eru 63% allra atvinnulausra. Þeim sem hafa verið atvinnulausir í meira en eitt ár fjölgar aftur á móti um 91 á milli mánaða og eru nú 4.554 eða 39% atvinnulausra. Langtímaatvinnuleysi er enn mikið miðað við undanfarin ár.
Vinnumálastofnun býst við því að atvinnuleysi verði á bilinu 6,5-6,8% í september. Seðlabanki Íslands býst við því að atvinnuleysi aukist yfir vetrarmánuðina en verði þó minna en gert var ráð fyrir í apríl. Ein ástæða þess er sú að svo virðist sem atvinnurekendur velti auknum launakostnaði frekar útí verðlag í stað þess að segja upp starfsfólki. Seðlabankinn spáir því að atvinnuleysi verði að meðaltali 6,2% árið 2012 og verði komið niður í 4,5% undir lok ársins 2013. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er örlítið bjartsýnni á atvinnuleysisþróunina og gerir ráð fyrir 5,7% atvinnuleysi árið 2012 og 4,3% 2013.
Til baka