- Fréttir og tilkynningar
Talsvert hægði á hagvexti á 2. ársfjórðungi
Landsframleiðslan dregst saman milli ársfjórðunga en eykst sé miðað við sama tímabil í fyrra
Hagstofan birti í dag fyrsta mat á vexti landsframleiðslunnar á öðrum ársfjórðungi ársins. Eins birti Hagstofan uppfært mat á landsframleiðslunni aftur í tímann.
Samkvæmt tölum Hagstofunnar hefur hagkerfið vaxið samfleytt tvo ársfjórðunga í röð milli ára, 3,6% á fyrsta ársfjórðungi og 1,4% á öðrum ársfjórðungi. Það er vissulega jákvæð tíðindi eftir langt samdráttarskeið frá miðju ári 2008. Efnahagsbatinn er hinsvegar enn mjög veikburða og fjárfestingarstigið í sögulegu lágmarki.
Breytingar undirliða á 2. fjórðungi milli ára voru helstar þær að einkaneyslan jókst um 5,1% en Seðlabankinn hafði spáð því að vöxturinn yrði 7%. Samneysla og fjármunamyndun jukust hvor um sig um 1% og jukust þjóðarútgjöld um 6%. Útflutningur dróst saman um 3,7% en á sama tíma jókst innflutningur um 4,1%.
Bakslag í vexti milli fjórðunga
Alls dróst landsframleiðslan saman um 2,8% á 2. fjórðungi frá 1. fjórðungi sé tekið tillit til árstíðarleiðréttingar. Þennan samdrátt ber þó að taka af varúð þar sem miklar og nokkuð óvenjulegar birgðabreytingar urðu á sjávarafurðum milli fjórðunga. Þær breytingar auka mjög óvissu um mat á árstíðarleiðréttum samdrætti milli 1. og 2. fjórðungs.
Þrátt fyrir þessa óvissu er þetta fyrsti samdrátturinn milli samliggjandi fjórðunga síðan milli 1. og 2. fjórðungs síðasta árs. Ef endurskoðun á árstíðarleiðréttum vexti verður ekki til töluverðrar hækkunar er ljóst að þessi samdráttur er ákveðið bakslag fyrir efnahagsuppganginn hér á landi.
Lítill vöxtur fjárfestingar
Á fyrri helmingi ársins óx hagkerfið um 2,5% til samanburðar við sama tímabil árið áður. Ágústspá Seðlabankans fyrir hagvöxt yfir árið í heild sinni nam 2,8%. Þó að hraði vaxtarins það sem af er ári sé ekki svo frábrugðin spá Seðlabankans er í sumum tilfellum mikill mismunur á vexti einstakra liða. Vöxtur fjárfestingar á fyrri helmingi ársins miðað við sama tímabil í fyrra nemur 2,2% en til samanburðar hljóðar ágústspá Seðlabankans upp 10,3% vöxt milli áranna 2011 og 2010. Hér er þó rétt að taka tillit til þess að Hagstofan hefur haft tilhneigingu til að vanmeta fyrstu tölur yfir fjárfestingu hverju sinni. Útflutningur dróst saman um 0,5% á fyrri helmingi ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Seðlabankinn spáði í ágúst að vöxtur útflutnings á þessu ári yrði 1,9%. Vöxtur samneyslu það sem af er ári er hins vegar jákvæður öfugt við spá Seðlabankans um 2,2% samdrátt yfir árið.
Hvað þýðir þetta fyrir verðbólguhorfurnar?
Heilt yfir benda tölurnar yfir fyrri helmingi ársins til þess að hagvöxtur fyrir árið í heild verði minni en Seðlabankinn spáði í ágúst. Minni þróttur í hagkerfinu gefur tilefni til þess að ætla að verðbólguþrýstingurinn kunni einnig að vera nokkru minni en Seðlabankinn spáði. Þó má fastlega búast við því að Peningastefnunefnd Seðlabankans haldi áfram vaxtahækkunarferlinu, sem hófst í ágúst síðastliðnum, við næstu ákvörðun stýrivaxta hinn 5. október næstkomandi.
Til baka