- Efnahagsmál - Hagsjá
Hagfræðideild páir 0,25% lækkun stýrivaxta
Í síðustu yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands frá 8. desember 2010 kom fram að peningastefnunefndin teldi að enn kynni að vera eitthvert svigrúm til áframhaldandi slökunar peningalegs aðhalds haldist gengi krónunnar stöðugt eða styrkist og hjaðni verðbólga eins og spáð er.
Á þeim tíma sem liðið hefur frá ákvörðuninni hefur verðbólga vissulega hjaðnað hraðar en væntingar stóðu til um og mælist hún nú 1,8%, töluvert undir 2,5% markmiði Seðlabankans. Þar skiptir þó mestu áhrif lækkunar vísitölunnar vegna niðurfellingar útvarpsgjalds úr vísitölunni og tímabundin útsöluáhrif í janúarmánuði. Raunstýrivextir hafa því hækkað talsvert frá síðustu vaxtaákvörðun sem eykur aðhaldsstig peningastefnunnar. Á móti vegur að gengi krónunnar hefur veikst umtalsvert á sama tímabili, en gengisvísitalan hefur hækkað um 4% frá því vöxtum var síðast breytt, þar af um 2,7% frá áramótum. Lítil velta er hinsvegar á gjaldeyrismarkaði og þarf því lágar upphæðir til að hreyfa við krónunni.
Á heildina litið telur Hagfræðideild Landsbankans líklegt að peningastefnunefndin meti svigrúm til vaxtalækkunar minna en ella og muni því aðeins lækka virka stýrivexti seðlabankans um 0,25% á næsta vaxtaákvörðunardegi hinn 2.febrúar.
Til baka