Fréttir frá Kauphöll

föstudagur, 25. maí 2012, 15:44

Eyrir Invest ehf.

Eyrir Invest ehf. Hluthafafundur

Hluthafafundur Eyris Invest ehf., kt. 480600-2150, Skólavörðustíg 13, 101
Reykjavík, verður haldinn klukkan 12:00 þann 5. júní 2012 í húsakynnum
félagsins. 

Á dagskrá fundarins verða eftirfarandi mál:

1. Breyting félagsins úr einkahlutafélagi í hlutafélag

Tillaga um að breyta félaginu úr einkahlutafélagi í hlutafélag í samræmi við
ákvæði 107. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög. Gera verður breytingar á
samþykktum félagsins til að uppfylla skilyrði laga nr. 2/1995 um hlutafélög. 

2. Rafræn skráning hluta

Tillaga um að skrá hlutafé félagsins með rafrænum hætti í samræmi við lög nr.
131/1997 um rafræna eignaskráningu verðbréfa. Gera verður breytingar á ákvæðum
6. og 7. gr., samþykkta félagsins vegna rafrænu skráningarinnar. 

3. Breyting samþykkta ¿ meðferð hluta

Tillaga um að afnema allar hömlur á meðferð hluta í félaginu. Gera verður
breytingar á 7. gr. samþykkta félagsins þannig að bann við sölu og veðsetningu
hluta mun falla niður. 

4. Önnur mál

Önnur mál löglega upp borin.

Dagskrá og endanlegar tillögur munu liggja frammi á skrifstofu félagsins
hluthöfum til sýnis viku fyrir fundinn.

Til baka

Fréttir frá Kauphöll Íslands


Reglur um verðbréfaviðskipti (MiFID)