Helstu hagtölur í síðustu viku
Í vikunni hélt Seðlabankinn gjaldeyrisútboð sem lið í áætlun bankans um losun gjaldeyrishafta. Gjaldeyrisútboðið var tvískipt. Í fyrri hluta útboðsins keypti bankinn evrur fyrir 9,2 ma. króna á genginu 238,8. Í síðari hluta útboðsins seldi bankinn evrur fyrir 9,1 ma. króna á genginu 239. Til samanburðar var heildarkrónueign erlenda aðila í lok mars 428,2 ma.kr.
Seðlabankinn birti í vikunni í fyrsta sinn upplýsingar um samsetningu þátttakenda í þeim gjaldeyrisútboðum sem hafa átt sér stað. 91% kaupanda ríkisverðbréfanna hafa verið lífeyrissjóðir, aðrir aðilar hafa keypt 9%. Undirliggjandi fjárfestingar fjárfestingarleiðarinnar skiptast með þeim hætti að hlutabréf hafa verið 60% kaupanna, skuldabréf 29%, fasteignir 10% og kaup í verðbréfasjóðum 1%.
Helstu hagtölur þessa viku
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands mun tilkynna vaxtaákvörðun miðvikudaginn 16. maí næstkomandi. Hagfræðideild Landsbankans telur að peningastefnunefndin muni hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Sjá nánar í Hagsjá frá 11. maí.
Hagtölur 14. maí 2012
Markaðsupplýsingar 14. maí 2012
Mynd vikunnar
Á mynd vikunnar sést munur á virkum stýrivöxtum Seðlabankans annars vegar og verðbólguálags á skuldabréfamarkaði hins vegar. Munurinn á þessu tvennu er nokkuð góður mælikvarði á raunstýrivexti. Það að raunstýrivextir séu neikvæðir, eins og raunin er núna, bendir til þess að aðhald peningastefnu Seðlabankans sé nokkuð laust.
Hvað fannst þér um þessa grein? Láttu okkur vita