Starfsmannastefna

Landsbankinn leitast við að ráða til sín og hafa í sínum röðum framúrskarandi starfsfólk og efla það í störfum sínum. Til að stuðla að vexti og arðsemi bankans er áhersla lögð á skemmtilegan vinnustað, starfsánægju og gott starfsumhverfi sem og markvissa starfsþróun og þekkingu starfsfólks.

Starfsumhverfi

Landsbankinn leggur áherslu á að skapa skemmtilegan og áhugaverðan vinnustað þar sem tækjabúnaður og aðstaða er eins og best verður á kosið. Bankinn leggur sig fram um að skapa starfsumhverfi með gagnkvæmum sveigjanleika þar sem þarfir fjölskyldu og starfs fara saman.

Starfsánægja

Mikið er lagt upp úr að starfsumhverfi bankans einkennist af góðum starfsanda, jákvæðu viðhorfi og starfsánægju og að starfsfólk sýni gagnkvæma virðingu í öllum sínum samskiptum.

Ráðningar

Landsbankinn leggur áherslu á að fá til liðs við sig öflugt og traust starfsfólk með fjölbreytilegan bakgrunn. Hverju sinni er tekið mið af reynslu, menntun, og hæfni umsækjenda til að takast á við starfið. Allir sem hefja störf hjá bankanum fá góðar móttökur og fræðslu um starfsemi bankans svo og markvissa starfsþjálfun.

Starfskjör

Lögð er áhersla á að laun og aðbúnaður séu samkeppnishæf og að hagsmunir starfsfólks og bankans fari saman með árangurstengdu launakerfi. Einstaklingar eru metnir á eigin forsendum og ákvarðanir um starfskjör taka mið af frammistöðu, starfi og ábyrgð.

Starfsþróun og fræðsla

Starfsfólk Landsbankans er hvatt til að þróast og vaxa í starfi m.a. með öflugu fræðslustarfi og árlegum starfsmannasamtölum. Lögð er áhersla á að hjá bankanum starfi hæft starfsfólk sem býr yfir faglegri þekkingu. Virk fræðslustefna miðar að því að starfsfólk geti eflt hæfni sína og nýtt hæfileika sína til fulls hverju sinni.

Þekkingarmiðlun

Til að sinna verkefnum sínum vel þarf starfsfólk á hverjum tíma að hafa greiðan aðgang að nauðsynlegum upplýsingum. Innri vefur bankans er upplýsingaveita starfsfólks á hverjum tíma. Landsbankinn leggur einnig mikla áherslu á að starfsfólk miðli af þekkingu sinni til samstarfsmanna.

Jafnrétti

Í jafnréttisstefnu Landsbankans er lögð áhersla á að tryggja jafnrétti innan bankans og að hver starfsmaður sé metinn á eigin forsendum. Einelti, fordómar og kynferðisleg áreitni er ekki liðin innan bankans.

Öryggi og heilsuvernd

Landsbankinn leitast við að tryggja öryggi starfsfólks á vinnustað sem og heilsusamlegt starfsumhverfi.

Starfslok vegna aldurs

Til undirbúnings fyrir ævikvöldið býður Landsbankinn starfsfólki sínu sem er að nálgast starfslok vegna aldurs á námskeið til að hvetja til jákvæðs hugarfars vegna starfsloka og auka skilning á eigin vilja og þörfum.

Starfsmannastefnu framfylgt

Til að viðhalda virkri starfsmannastefnu notar bankinn hin ýmsu mælitæki til að fá upplýsingar um stöðu bankans á þeim sviðum sem starfsmannastefnan tekur til. Þar má nefna starfslokagreiningar, mælingar á starfsmannaveltu, þjónustukannanir, reglulegar vinnustaðagreiningar og starfsmannasamtöl. Með markvissum hætti má þannig fá upplýsingar um hvernig starfsmannastefnunni er framfylgt og hversu virk hún er.