Í netbanka fyrirtækja eru rafræn skjöl aðgengileg í allt að 7 ár. Allir reikningar og greiðsluseðlar birtast í þeirri mynd sem viðskiptavinir þekkja.
Helstu kostir
- Umsýsla reikninga og skjala verður einfaldari og pappírsnotkun minnkar. (þar sem ekkert er prentað og engin umslög notuð.)
- Prentkostnaður og póstburðargjald sparast. Líkt og með rafrænu launaseðlana, má segja að viðskiptaaðilar láti gott af sér leiða með því að stuðla að umhverfisvænum viðskiptaháttum.
- Greiðendur geta einnig sparað þar sem fyrirtæki geta boðið lægri seðilgjöld og/eða umsýslugjöld. Uppflettingar og útskriftir á afritum reikninga og skjala verður minni á skrifstofum fyrirtækja þar sem greiðendur geta nálgast öll gögn í eigin netbanka.
Hafðu samband og pantaðu kynningu
- Sérfræðingar aðstoða þig og veita þér ráðgjöf í síma 410 9090
- Einnig getur þú sent fyrirspurn á netfangið netbanki@landsbankinn.is