Eignayfirlit
Í netbankanum er hægt að skoða yfirlit yfir helstu eignir og skuldir fyrirtækis hjá Landsbankanum. Yfirlitin sýna stöðuna eins og hún er í lok síðasta virka dags.
Í eignayfirliti má sjá stöðu allra innlánsreikninga, verðbréfa, greiðslukortakrafa, kröfur á þriðja aðila í innheimtu hjá Landsbankanum, yfirlit yfir bankaábyrgðir sem og aðrar kröfur.
Yfirlit innlánsreikninga, verðbréfa og greiðslukortakrafna sýna:
- Innstæður á tékkareikningum, á sparisjóðsreikningum og öðrum skammtíma innlánsreikningum.
- Innstæður á innlendum gjaldeyrisreikningum.
- Samtölu erlendra útflutningsábyrgða, að því tilskyldu að fullnægjandi skjölum hafi verið skilað til bankans. Kröfur sem bankinn hefur fjármagnað birtast undir liðnum Seld viðskiptabréf og aðrar skuldbindingar fyrirtækis utan efnahags.
- Samtölu á kreditkortakröfum söluaðila. Raðgreiðslusamningar koma ekki fram í samtölunni.
- Samtölu verðbréfaeignar í vörslu hjá Landsbankanum (VS reikningar).
Kröfur á þriðja aðila í innheimtu hjá Landsbankanum sýna:
- Samtölu skuldabréfa og víxla í innheimtu hjá Landsbankanum.
- Samtölu á kröfum í innheimtu hjá Landsbankanum. Ógreiddar kröfur falla út úr samtölunni þegar 30 dagar eru liðnir frá gjalddaga.
- Samtölu á erlendum kröfum í innheimtu hjá Landsbankanum.
Bankaábyrgðir Landsbankans og aðrar kröfur utan efnahags sýna:
- Samtölu opinna bakábyrgða, innlendra og erlendra.
- Samtölu opinna útflutningsábyrgða, þar sem fullnægjandi skjölum hefur ekki verið skilað til bankans.
Skuldayfirlit
Skuldayfirlit birtir beinar skuldir við Landsbankann, kröfur þriðja aðila í innheimtu hjá Landsbankanum,
yfirliti yfir seld viðskipabréf og aðrar skuldbindingar fyrirtækisins.
Beinar skuldir við Landsbankann sýna:
- Heildaryfirdrátt (skuldir) á tékkareikningum, innistæðulausa tékka og vanskil.
- Samtölu afurðalána, erlendra endurlána, persónuvíxla, eigin víxla, skuldabréfalána og gjaldfallnar innflutningsábyrgðir.
- Samtölu eftirstöðva skuldabréfa og víxla sem bankinn hefur keypt og fyrirtækið er greiðandi að.
- Samtölu skulda vegna kreditkorta fyrirtækisins.
- Samtölu opinna innflutningsábyrgða með greiðslufresti, ef fullnægjandi skjöl hafa borist bankanum. Vanskil koma fram sem bein útlán.
Kröfur þriðja aðila í innheimtu hjá Landsbankanum sýna:
- Samtölu eftirstöðva skuldabréfa og víxla sem fyrirtækið er greiðandi að og Landsbankinn er með í innheimtu fyrir þriðja aðila.
- Samtölu erlendra krafna sem fyrirtækið er greiðandi að og Landsbankinn er með í innheimtu fyrir þriðja aðila.
Seld viðskiptabréf og aðrar skuldbindingar fyrirtækis utan efnahags sýna:
- Samtölu viðskiptaskuldabréfa, viðskiptavíxla og erlendra krafna (kröfukaup), sem fyrirtækið hefur selt bankanum. Útflutningsábyrgðir sem bankinn hefur keypt án endurkröfu eru undanskildar.
- Ábyrgðir á skuldabréfum og víxlum þar sem fyrirtækið er hvorki greiðandi né seljandi. Sjálfskuldarábyrgðir á viðskiptasamningum annarra. Ennfremur innlendar og erlendar bakábyrgðir bankans.
- Allsherjarveð, einstök veð t.d. í fasteignum og skipum og ábyrgðarskuldbindingar annarra á skuldum fyrirtækisins.
- Tryggingar sem eru sameiginlegar með öðrum fyrirtækjum, t.d. innan fyrirtækjasamstæðu. Tryggingarnar geta staðið að baki útlánum til annarra lögaðila.
Hafðu samband og pantaðu kynningu
- Sérfræðingar aðstoða þig og veita þér ráðgjöf í síma 410 9090
- Einnig getur þú sent fyrirspurn á netfangið netbanki@landsbankinn.is