Í netbanka fyrirtækja er hægt að stofna stakar kröfur og breyta þeim.
Hægt er að stofna kröfur með því að skrá þær í bunka og senda þannig inn skilgreint safn innheimtukrafna. Hægt er að vinna með bunka eftir að hann hefur verið stofnaður og hægt að breyta honum að vild fram að bókun.
Við bókun birtist villulisti ef um villur er að ræða og getur kröfuhafi á einfaldan hátt tekið út villulistann og unnið með hann sérstaklega þegar honum hentar.
Kröfur eru stofnaðar í höfuðbók 66 og birtast því í öllum heimabönkum landsins.
Hafðu samband og pantaðu kynningu
- Sérfræðingar aðstoða þig og veita þér ráðgjöf í síma 410 9090
- Einnig getur þú sent fyrirspurn á netfangið netbanki@landsbankinn.is