Sjálfvirk innheimta

Í netbanka fyrirtækja er hægt að velja um sjálfvirkan flutning krafna yfir til innheimtuaðila. Kröfueigandi ákveður stýringu við stofnun kröfu og krafan fer síðan sjálfvirkt í gegnum allt innheimtuferlið. Kröfuhafi hefur yfirsýn yfir stöðu mála í gegnum allt ferlið og getur gripið inn í ef þörf er á.

Hafi verið gerður innheimtusamningur við sérhæft innheimtufyrirtæki þá getur bankinn annast sendingu á ógreiddum kröfum til innheimtufyrirtækisins eftir skilyrðum samningsins. Kerfið er einnig með tengingu við innheimtukerfi lögmanna (IL+) sem býður upp á sjálfvirkan flutning til allra lögmanna sem nota það kerfi.

Hafðu samband og pantaðu kynningu

  • Sérfræðingar aðstoða þig og veita þér ráðgjöf í síma 410 9090
  • Einnig getur þú sent fyrirspurn á netfangið netbanki@landsbankinn.is