Prentun og útsendingar

Unnt er að velja um nokkrar leiðir fyrir prentun og útsendingar á greiðsluseðlum og reikningum.

Við útgáfu greiðsluseðla er algengt að bankinn prenti út og sendi greiðsluseðla fyrir hönd útgefenda og er þá um að ræða staðlaða útprentun.

Sendi kröfuútgefendur reikninga og fylgiskjöl samhliða greiðsluseðlum er algengt að prentun og pökkun fari fram innandyra hjá útgefendum. Bankinn úthlutar þá einkvæmum númerum til útprentunar á greiðsluseðla.<

Þá er netbanki fyrirtækja milligönguaðili um sérprentun hjá prentsmiðju og sendir upplýsingar sjálfvirkt til prentsmiðju sem sérprentar reikninga, greiðsluseðla og/eða fylgiskjöl.

Sérprentaðir reikningar geta innihaldið auglýsingar sem beint er til fyrirfram skilgreindra markhópa.

Hafðu samband og pantaðu kynningu

  • Sérfræðingar aðstoða þig og veita þér ráðgjöf í síma 410 9090
  • Einnig getur þú sent fyrirspurn á netfangið netbanki@landsbankinn.is