Launagreiðslur og VSK skil

Launagreiðslur

Launagreiðslur eru meðhöndlaðar sérstaklega í netbanka fyrirtækja. Launagreiðsluhlutinn gerir fyrirtækjum kleift að sjá um launagreiðslur, stofna, eyða og laga launalista, skrá launþega og senda launaskrár.

Helstu kostir

  • Launagreiðslur er hægt að senda inn stakar eða í bunkum og eru framkvæmdar á svipaðan hátt og aðrar greiðslur.
  • Greiðslurnar eru auðkenndar sérstaklega sem launagreiðslur í yfirlitum.
  • Notendur geta nálgast yfirlit yfir greidd laun þegar þörf er á.
  • Greiðsluskrár er hægt að taka beint úr launakerfum og færa til bókunar í netbanka fyrirtækja.
  • Hægt er að leita að launum eftir upphæðum, kennitölu og nafni launþega.
  • Ef launagreiðsla er stillt fram í tímann framkvæmist hún kl 9:00 á viðkomandi degi.
  • Hægt er að stofna ‚þekkta viðtakendur‘ (launþega) í kerfinu.

VSK skil

Mögulegt er að skila virðisaukaskattskýrslum rafrænt og greiða þær í gegnum netbankann. Skýrslurnar eru villuprófaðar sem lágmarkar hættu á mistökum og eldri skýrslur eru aðgengilegar.

Helstu kostir

  • Veflykilinn er hægt að vista (þægindi umfram www.rsk.is)
  • VSK skil eru villuprófuð
  • Álag og greiðsla reiknuð
  • Mögulegt að greiða strax eða velja greiðsludag síðar
  • Eldri skýrslur eru aðgengilegar
  • Meira öryggi

VSK-númer sem skráð eru á kennitölu birtast séu þau fleiri en eitt. Fyrirtæki og einstaklingar sem hafa áður skilað á netinu í gegnum Vefskil Ríkisskattstjóra geta skráð sinn veflykil og vistað hann þannig.

Þegar VSK skýrsla er fyllt út og henni skilað birtast upplýsingar um álag og hvað er til greiðslu. Mögulegt er að greiða strax eða velja greiðsludagsetningu fram í tímann.

Hægt er að skoða skýrslur sem búið er að skila í gegnum netbankann aftur í tímann.

Hafðu samband og pantaðu kynningu

  • Sérfræðingar aðstoða þig og veita þér ráðgjöf í síma 410 9090
  • Einnig getur þú sent fyrirspurn á netfangið netbanki@landsbankinn.is