Greiðslusamþykktarferli

Greiðslusamþykktarferli í netbanka fyrirtækja tryggir fyrirtækjum og stofnunum hámarks öryggi við rafrænar bankagreiðslur á netinu.

Þjónustan í hnotskurn

  • Einn eða fleiri notendur þurfa að samþykkja greiðslu áður en hún er endanlega innt af hendi.
  • Samþykktarferli geta verið mismunandi eftir því hver upphæð greiðslunnar er. Samþykktaraðilar eru flokkaðir í ólíka flokka í kerfinu eftir því hver réttindi þeirra eru til samþykktar á greiðslum (A, B, C). Notendur geta til dæmis haft mismunandi samþykktarheimildir fyrir ólíkar greiðslufjárhæðir.
  • Til að virkja greiðslusamþykktarferli í Fyrirtækjabankanum þarf að skrá fyrirtækið og notendur þess hjá þjónustuborði fyrirtækja í síma 410 9191.

Hafðu samband og pantaðu kynningu

  • Sérfræðingar aðstoða þig og veita þér ráðgjöf í síma 410 9090
  • Einnig getur þú sent fyrirspurn á netfangið netbanki@landsbankinn.is