Iðgjaldstímabil er að hámarki einn mánuður. Gjalddagi iðgjalda er 10. næsta mánaðar og eindagi 30. þess mánaðar. Ef iðgjald er ekki greitt fyrir eindaga leggjast á það hæstu dráttarvextir sem Seðlabanki Íslands heimilar innlánsstofnunum að taka. Dráttarvextir eru reiknaðir frá gjalddaga til greiðsludags.
Við skil á greiðslum launþega, hvort sem um er að ræða viðbótar- eða lögbundinn lífeyrissparnað, þurfa alltaf að fylgja skilagreinar til að hægt sé að skipta greiðslunni niður á launþega eftir því hvaða ávöxtunarleið launþeginn hefur valið að ávaxta sparnað sinn í.
Útreikningi á framlagi launagreiðanda má skipta í tvennt:
Lágmarksiðgjald til lífeyrissjóðs skal vera 12% af iðgjaldastofni skv. lögum. Launagreiðendur greiða 8% af heildarlaunum launþega sinna í lögbundinn lífeyrissparnað. Framlag launþegans er 4%. Einstaklingur sem er með 100.000 kr. í heildarlaun á mánuði leggur því 12.000 kr. fyrir í lögbundinn lífeyrissparnað á mánuði, 4.000 kr. af sínum heildarlaunum og launagreiðandinn 8.000 kr. á móti.
Ef launþegi velur að leggja fyrir í viðbótarlífeyrissparnað er honum heimilt að leggja allt að 4% (af óskattlögðum tekjum) í viðbótarlífeyrissparnað. Launagreiðandi sér um að koma greiðslunum til skila. Mótframlag launagreiðanda fer eftir kjarasamningum en algengast er að mótframlagið sé 2%