Tvenna
Handhafi Viðskiptakortsins getur fengið niðurfellt árgjald af sínu persónulega kreditkorti og þannig haldið fjárhag fyrirtækisins aðskildum frá eigin fjárhag.
Handhafar Gull Viðskiptakorta geta fengið frítt Gullkort fyrir sig persónulega og þeir korthafar sem velja Corporate vildarkort fá Einkakort frá MasterCard.
Fríðindi
Korthafar fá aðild að Priority Pass sem veitir aðgang að betri stofum á um 500 flugvöllum um allan heim gegn gjaldi.
Icelandair Saga Club
Ef Visakortið er tengt Icelandair Saga Club safna korthafar 12 vildarpunktum fyrir hverjar 1.000 krónur í innlendri veltu kortsins hjá söluaðilum, sem hafa söluaðilasamning við Valitor. Corporate kortið safnar 9 vildarpunktum fyrir hverjar 1.000 krónur í innlendri veltu kortsins hjá söluaðilum, sem hafa söluaðilasamning við Borgun. Auk þess safna korthafar punktum í viðskiptum við Icelandair og hjá fjölda verslana sem gefa afslátt í formi punkta þegar kortið er notað. Við árgjald kortsins bætist árgjald Icelandair Saga Club 1.500 kr.og fást 2.000 punktar í staðinn.
