Innkaupakort Landsbankans er ókeypis kreditkort enda er það án allra trygginga. Kortinu er ætlað til kaupa á rekstrarvörum og þjónustu sem og til greiðslu á reglulegum útgjöldum. Kortið kemur í stað beiðna og reikningsviðskipta.
Tilvalið er að nota Innkaupakort til að greiða reglulega reikninga með boðgreiðslum, s.s. síma- og orkureikninga og er þá kortanúmerið notað án plasts.
Sækja um Innkaupakort
Landsbankinn býður upp á Innkaupakort frá Visa og MasterCard. Innkaupakort má nota hjá öllum söluaðilum sem taka á móti kreditkortum bæði hérlendis og erlendis og eins í vefverslunum. Mögulegt er að stýra notkun kortsins, m.a við úttekt hjá ákveðnum birgjum, stýrt notkun erlendis eða sett hámark á mánaðarlega úttekt. Peningaúttektir eru ekki mögulegar.
Úttektartímabil er almanaksmánuður. Galddagi er 15. næsta mánaðar á Visa kortum en gjalddagi MasterCard korta er 25. næsta mánaðar.
Einnig er hægt er að fá Innkaupakortið sem Plúskort en þá er greitt inná það fyrirfram en að öðru leiti virkar kortið eins og venjulegt kreditkort.
Landsbankinn hf. Austurstræti 11, 155 Reykjavík, Kt. 471008-0280
Swift: NBIIISRE Reglur Lagalegur fyrirvari Umboðsmaður viðskiptavina Veftré