Færsluvefur

Færsluvefir MasterCard og Visa

Færsluvefir Visa og MasterCard birta allar færslur Innkaupakorta og Viðskiptakorta strax daginn eftir kaup. Á færsluvef er hægt að bókhaldsmerkja allar færslur og flytja í fjárhagskerfið.

Góð yfirsýn

Færsluvefir MasterCard og Visa veita góða yfirsýn yfir allar kortafærslur Innkaupakorta og Viðskiptakorta sem eykur kostnaðarvitund starfsmanna.

Góðar aðgangsstýringar eru mögulegar þannig að korthafi sjái aðeins eigin færslur, deildarstjóri sjái færslur á öll kort deildarinnar og fjármálastjórinn færslur á allt fyrirtækið.

Sjálfvirkar bókanir

Færsluvefurinn er settur upp sérstaklega til að mæta þörfum hvers fyrirtækis eða stofnunar og endurspeglar fjárhagskerfi þess.

Á færsluvefnum eru færslurnar bókhaldsmerktar og geta fyrirtæki sjálf skilgreint færslur til að þær bókist sjálfkrafa þar.

Færslur fluttar í bókhald

Þegar búið er að bókhaldsmerkja allar færslur á færsluvefnum eru þær fluttar rafrænt í fjárhagskerfið.

Tenging er möguleg í öll helstu fjárhagskerfi sem eru í notkun hér á landi eins og DK, Microsoft Dynamics NAV, Microsoft Dynamics AX, SAP, Oracle o.fl.