Innheimtuþjónustan felur í sér:
- Stofnun, niðurfellingu og breytingu krafna
- Bein samskipti við bókhaldskerfi
- Rafræna birtingu í öllum netbönkum
- Prentun og útsendingar
- Innheimturáðgjöf
Notendur geta skilgreint sjálfvirk og sérsniðin innheimtuferli eftir eigin þörfum sem henta öllum greiðendum. Mögulegt er að stofna fleiri en eina innheimtuþjónustu og innheimta þannig frá ólíkum hópum viðskiptavina á mismunandi hátt.
Sjálfvirkur flutningur krafna til milliinnheimtuþjónustu eða lögfræðings er fyrir hendi. Einnig er boðið upp á rafræna birtingu reikninga í öllum netbönkum fyrir þá sem vilja birta kröfur sínar rafrænt.
Kröfuhafar geta sótt greiðslur og keyrt beint inn í eigið bókhaldskerfi. Þessi samkeyrsla við bókhaldskerfið sparar notendum tíma við innslátt og dregur verulega úr villuhættu.
Notendum innheimtuþjónustu netbankans býðst sérfræðiráðgjöf og innheimtugreining í upphafi þjónustunnar. Notendur geta jafnframt óskað eftir yfirferð á innheimtumálum þegar þeim hentar.