Rekstrarlán
Landsbankinn býður ýmsar tegundir rekstrarlána sem ætlað er að fjármagna sveiflur í rekstri fyrirtækja og fjármagna birgðir og kröfur.
Lánin eru í eðli sínu skammtímalán og geta verið til allt að 12 mánaða.
Yfirdráttarlán
Yfirdráttarlán eru algengasta form fjármögnunar og er ætlað að jafna reglubundnar sveiflur í fjárþörf fyrirtækja.
Reikningslán
Reikningslán hafa fasta endurgreiðsludagsetningu, og getur lánstími verið allt frá einum degi upp í 12 mánuði. Reikningslánum er ætlað að jafna sveiflur í fjárþörf sem eru umfram þær sem yfirdráttarlán jafna.
Kröfufjármögnun
Kröfufjármögnun Landsbankans hentar fyrirtækjum sem eru með fé bundið í viðskiptakröfum eða eru í örum vexti. Með kröfufjármögnun gefst fyrirtækjum kostur á að fá aukið rekstrarfé með fjármögnun gegn veði í viðskiptakröfum, fjármögnunarhlutfall viðskiptakrafna getur orðið allt að 85%. Með bættu fjárstreymi er einnig hægt að greiða birgjum fyrr og ná þannig fram hagstæðari innkaupum. Allar færslur fara í gegnum Netbanka fyrirtækja og spara þannig vinnu og fyrirhöfn.
Kaup viðskiptabréfa
Sala á viðskiptabréfum er ein leið til rekstrarfjármögnunar. Mögulegt er að minnka fjárbindingu vegna útistandandi krafna með þv´ði að selja bankanum t.d. viðskiptavíxla, viðskiptaskuldabréf, raðgreiðslusamninga og kreditkortanótur.
Innheimtulán
Innheimtulán eru ætluð smærri fyrirtækjum og einyrkjum til fjármögnunar á rekstri. Þessi lán eru veitt á móti væntanlegum greiðslum, t.d. vegna greiðslukorta, innheimtu á reikningum eða viðskiptabréfum.
Birgðafjármögnun
Í boði eru skammtímalán sem veitt eru gegn tryggingu í birgðum, hér á landi sem erlendis. Lánin geta verið hvort sem er í formi yfirdráttarlána eða reikningslána. Algengast er að lánað sé fast hámarkshlutfall af verðmæti birgða.
Afurðalán
Afurðalán eru ætluð til fjármögnunar á framleiðslu og birgðahaldi, einkum í sjávarútvegi. Skila þarf inn afurðaskýrslu mánaðarlega eða í hvert skipti sem lán er veitt. Algengt er að lánað sé 65% af kostnaðarverði afurða hverju sinni.