Fjármögnunarleigusamningar byggja á því að Landsbankinn kaupir tækið og leigir til leigutaka sem greiðir það niður með leigugreiðslum í ákveðinn umsaminn tíma. Landsbankinn er því eigandi tækisins á meðan á leigutíma stendur, en leigutaki hefur fullan umráðarétt yfir því á meðan.
Leigutaki tryggir tækið í sínu nafni og greiðir af því öll eðlileg gjöld, skatta og skyldur, eins og t.d. bifreiðagjöld og þungaskatt, ásamt öllum öðrum kostnaði sem kann að koma til vegna viðgerða og/eða skemmda.
Í lok leigutíma á leigutaki kost á því að kaupa tækið (stundum bindandi) af Landsbankanum á umsömdu verði sem er yfirleitt á bilinu 1% til 3% af upphaflegum leigugrunni. Einnig býðst leigutaka að leigja tækið áfram.
Þegar gerður er fjármögnunarleigusamningur er öll leigugreiðslan gjaldfærð og atvinnutækið því í raun afskrifað (gjaldfært) að fullu á leigutímanum. Þetta hefur þá kosti í för með sér að greiðsla á tekjuskatti frestast ef leigutíminn er styttri en venjubundinn afskriftartími atvinnutækisins.
Landsbankinn greiðir kaupverðið með virðisaukaskatti. Leigan reiknast af kaupverði án virðisaukaskatts en virðisaukaskattur leggst á hverja leigugreiðslu. Leigutaki fær virðisaukaskattinn endurgreiddan sé hann með virðisaukaskattskyldan rekstur.
Landsbankinn hf. Austurstræti 11, 155 Reykjavík, Kt. 471008-0280
Swift: NBIIISRE Reglur Lagalegur fyrirvari Umboðsmaður viðskiptavina Veftré