Bíla- og tækjafjármögnun

Eignaleiga

Eignaleiga er samheiti á fjármögnunarleigu og kaupleigu og nýtist þeim sem ekki vilja binda rekstrarfé í tækjum. Hér kemur reynsla og þekking starfsfólks Landsbankans að góðum notum.

Eignaleiga nýtist í stórar og meðalstórar fjárfestingar og byggir á að Landsbankinn kaupir vél eða tæki fyrir viðskiptavin í umsaminn tíma. Algengur leigutími er 2-5 ár. Hægt er að greiða af samningnum mánaðarlega eða ársfjórðungslega.

Innskráning á mína síðu

SP-Fjármögnun

 Avant


Fjármögnunarleiga

Þegar gerður er leigusamningur um fjármögnun er öll leigugreiðslan gjaldfærð og atvinnutækið því í raun afskrifað (gjaldfært) að fullu á leigutímanum. Þetta hefur þá kosti í för með sér að greiðsla á tekjus katti frestast ef leigutíminn er styttri en venjubundinn afskriftartími atvinnutækisins.

Landsbankinn greiðir kaupverðið með virðisaukaskatti. Leigan reiknast af kaupverði án virðisaukaskatts en virðisaukaskattur leggst á hverja leigugreiðslu. Leigutaki fær virðisaukaskattinn endurgreiddan sé hann með virðisaukaskattskyldan rekstur.

Nánar um fjármögnunarleigu

Kaupleiga

Þegar atvinnutæki er tekið á kaupleigu er það eignfært í bókum leigutaka á leigutímanum og getur hann því reiknað sér afskriftir af því á leigutímanum. Hann fær þó ekki eignarhald á atvinnutækinu fyrr en við lokagreiðslu.

Landsbankinn greiðir kaupverðið án virðisaukaskatts. Leigan reiknast af kaupverði án virðisaukaskatts en leigutaki greiðir allan virðisaukaskattinn til seljanda strax í upphafi. Leigutakinn fær virðisaukaskattinn endurgreiddan sé hann með virðisaukaskattskyldan rekstur.

Nánar um kaupleigu


Tryggingar

Meginreglan er sú að ef fjármögnun fer ekki yfir 70% af kaupverði tækisins nægir tækið sjálft sem trygging. Ef hins vegar um fulla fjármögnun er að ræða þarf í flestum tilvikum frekari tryggingar eftir nánara samkomulagi viðsemjenda.

Sveigjanlegar greiðslur

Við leggjum áherslu á sveigjanleika í greiðslubyrði til að sem best jafnvægi ríki á milli tekjustreymis og útgjalda fyrirtæksins. Til dæmis er viðskiptavinum sem búa við árstíðabundinn rekstur boðið að stilla greiðslubyrði í hóf þegar nýting tækja og rekstur af þeim eru í lágmarki.