Fjármögnun á markaði

Lykillinn að vel heppnaðri fjármögnun á skipulögðum verðbréfamarkaði eru vönduð og skipulögð vinnubrögð og traust tengsl við fjárfesta. Landsbankinn hefur sterk tengsl við helstu fjárfesta á Íslandi.

Skuldabréfaútboð

Landsbankinn hefur verið leiðandi í útgáfu á skráðum skuldabréfum síðastliðin ár. Skuldabréfaútboð og skráning skuldabréfa í Kauphöll hentar vel sem fjármögnun fyrir fyrirtæki og sveitarfélög. Kostur slíkrar fjármögnunar er að með skuldabréfaútgáfu bjóðast fyrirtækjum og sveitarfélögum lán til lengri eða skemmri tíma á föstum vöxtum. Landsbankinn sinnir allri vinnu vegna skráningar skuldabréfa hjá Kauphöll, þar á meðal öllum samskiptum og milligöngu við Kauphöll og eftirlitsaðila, uppsetningu skilmála, útgáfu skráningarlýsinga, ráðgjöf varðandi sölufyrirkomulag og verðmat.

Hlutabréfaútboð

Landsbankinn veitir fyrirtækjum ráðgjöf og hefur umsjón með öflun nýs hlutafjár. Algengast er að um sé að ræða almenn útboð á hlutafé fyrirtækja sem eru skráð í Kauphöll eða hyggja á slíka skráningu en einnig getur verið um að ræða öflun hlutafjár fyrir óskráð félög sem þurfa á nýju hlutafé að halda.

Fyrirtækjaráðgjöf