Fjárfestingarlán

Fjárfestingarlánum er fyrst og fremst ætlað að fjármagna varanlegar eignir hjá fyrirtækjum, s.s. skip,
fasteignir, innréttingar og vélar með langan endingartíma.

Lánstími ræðst af áætluðum líftíma þeirrar eigna sem fjármögnuð er, en eru almennt til allt að 25 ára.
Endurgreiðsluferlið getur verið hefðbundið eða klæðskerasniðið að þörfum þess verkefnis em á að fjármagna.

Algengast er að fjárfestingar séu tryggð með veði í viðkomandi eign og eru veðhlutföll samkvæmt reglum bankans hverju sinni.

Lánasamningar

Í stærri lánaverkefnum eru gerðir lánasamningar og í þá má setja sérsniðna skilmála sem aðeins eiga við um viðkomandi lán.

Skuldabréf

Skuldabréf eru algengasta lánsform langtímalána. Þau bera oftast breytilega vexti skv. kjörvaxtaflokkun bankans. Sé lánið til skemmri tíma en 5 ára er miðað við óverðtryggða kjörvexti en oftast er miðað við verðtryggða kjörvexti ef um lengra lán er að ræða.

Sambankalán

Í stórum lánaverkefnum er oft þörf á fleiri en einum lánveitanda og getur sambankalán þá verið hentug lausn. Lántaki semur við Landsbankann um að leiða viðkomandi fjármögnun, en bankinn kallar síðan fleiri lánastofnanir til verksins.

Fasteignalán

Landsbankinn veitir lán til fasteignakaupa til allt að 25 ára með veði í viðkomandi eign. Lánshlutfall fer eftir lánareglum bankans auk eðlis viðkomandi verkefnis.

Lán til skipakaupa

Landsbankinn veitir viðskiptavinum sínum lán til skipakaupa til allt að 20 ára með veði í viðkomandi skipi. Lánshlutfall fer eftir lánareglum bankans auk eðlis viðkomandi verkefnis.

Verkefnafjármögnun

Verkefnafjármögnun er m.a. notuð við fjármögnun stórra verkefna þar sem sjóðstreymi verkefnisins er ætlað að standa undir endurgreiðslu lánsins í stað þess að byggt sé á hefðbundnum lánatryggingum. Lánstími og lánshlutfall fer eftir eðli viðkomandi verkefnis hverju sinni.