B2B er sérstök viðbót við netbanka fyrirtækja, til gagnaflutnings milli bankans og bókhaldskerfis fyrirtækis.
B2B er ekki starfrækt á vefsíðu heldur innan bókhaldskerfisins. Í innskráningu velur fyrirtækið á milli þess að nota sérstakt B2B notandanafn eða sama notandanafn og í netbankanum á netinu.
Nánari tækniupplýsingar eru á Þjónustusíðum B2B
Þó að XML sé skeytaþjónusta í eðli sínu þá má með einföldun lýsa henni sem raunverulegri textaskrá. Munurinn er einkum sá að upplýsingarnar eru settar fram á lesanlegri, aðgengilegri og notendavænni hátt bæði gagnvart bókhaldskerfinu og notendum þess.
Tökum greiðslur sem dæmi: Með B2B er sleppt því millistigi að þurfa að lesa út textaskrá úr bókhaldi og lesa hana inn í bankann. Annað dæmi er yfirlit bankareiknings: Þá er sleppt því millistigi að lesa textaskrá frá bankanum inn í bókhaldskerfið.
Vöruframboð B2B og B2Bws
Þjónustusíður B2B