Veltureikningur (Tékkareikningur)

Veltureikningar fyrirtækja

Tékkareikningur er algengasti veltureikningur fyrirtækja. Hægt er að millifæra á og af tékkareikningum í netbanka fyrirtækja eða netbanka einstaklinga og fylgjast þar með innborgunum og úttektum.

Einnig er hægt að sækja um yfirdráttarlán á tékkareikninga. Innlánsvextir tékkareikninga eru mismunandi eftir vaxtaflokkum. Þar sem innistæða á tékkareikningum er ætíð laus til útborgunar eru innlánsvextir þeirra þó oft lægri en annarra innlánsforma. Sé ætlunin að ávaxta stærri fjárhæðir í lengri tíma nást oft hærri vextir á öðrum innlánsformum bankans.

Allir viðskiptavinir 12 ára og eldri geta opnað veltureikning. Auðvelt að fylgjast með innborgunum og úttektum í gegnum netbankann, hraðbanka eða þjónustusíma banka og sparisjóða (515 4444). Einstaklingar, sem náð hafa 18 ára aldri, geta sótt um yfirdráttarlán á veltureikninga. Gefin eru út debetkort á veltureikninga, auk þess sem hægt er að sækja um tékkhefti. Færslugjöld og árgjöld eru samkvæmt gjaldskrá Landsbankans.

Helstu kostir veltureikninga:

  • Útgefin debetkort á veltureikninga
  • Yfirdráttarheimild möguleg fyrir 18 ára og eldri
  • Betri yfirsýn yfir fjármálin með sjálfvirkri flokkun færslna í heimilisbókhaldinu í netbankanum
  • Hægt er að sækja um tékkhefti á veltureikninga