Bankaábyrgðum má í meginatriðum skipta í tvo flokka
Kostir bankaábyrgða
Bankaábyrgð tryggir bæði hag kaupanda og seljanda.
Greiðsluöryggi
Öryggi seljanda er tryggt með því að bankinn er skuldbundinn að greiða honum andvirði vörunnar fullnægi hann ákvæðum ábyrgðarinnar. Geri hann það, hefur staða kaupandans lítil áhrif á seljanda.
Auðveldari fjármögnun
Seljandi getur fengið greiðslu fyrir vöruna á meðan hún er á leiðinni til kaupanda án þess að nota lánsviðskipti banka.
Hagur kaupanda
Kaupandi er viss um að greiðsla verður ekki innt af hendi til seljanda fyrr en seljandi hefur staðið við skyldur sínar skv. skilmálum ábyrgðarinnar.
Með bankaábyrgð á kaupandi auðveldara með að fá vörukaup sín alveg eða að nokkru leyti fjármögnuð af sínum banka þar til varan kemur til landsins.
Hvernig á að bera sig að?
Þegar ákveðið hefur verið í samningi á milli kaupanda og seljanda að greiðsluskilmálar verði í formi bankaábyrgðar sem verði greiðsluhæf í banka seljanda, sækir kaupandi um það til síns viðskiptabanka að hann gefi ábyrgðina út. Í ábyrgðarumsókninni koma fram þau atriði sem seljandi þarf að uppfylla til að fá andvirði vörunnar greitt.
Þegar Landsbankinn hefur tekið á móti ábyrgðarumsókn frá viðskiptavini á þar til gerðu eyðublaði, hún samþykkt og kaupandi sett fram umbeðnar tryggingar, þá sendir Landsbankinn ábyrgðina með SWIFT skeyti til tilkynningarbanka sem síðan tilkynnir hana áfram til seljanda.
Umsóknareyðublöðin geta viðskiptavinir Landsbankans fengið sendar til sín á rafrænu formi.
Ábyrgðaraðilar
- Kaupandi (applicant)
- Banki kaupanda (útgáfubanki - issuing bank)
- Banki seljanda (tilkynningarbanki - advising bank)
- Seljandi (beneficiary)
Nánari upplýsingar
Frekari upplýsingar veita viðskiptastjórar á fyritækjasviði í síma 410 7400 eða fyrirtækjasérfræðingar í stærri útibúum Landsbankans
Umsóknir og eyðublöð vegna ábyrgða