Lánareiknir

Forsendur skuldabréfaláns

Greiðslur skuldfærðar af viðskiptareikningi á gjalddaga

Ef merkt er við þennan valkost greiðist rétt upphæð sjálfkrafa af viðskiptareikningi á hverjum gjalddaga. Við það lækkar kostnaður á hvern gjalddaga úr 595 kr. í 195 kr.

Lántaki er Vörðufélagi eða Námufélagi

Ef lántaki er félagi annaðhvort í Vörðunni eða Námunni, og einnig er merkt við „Greiðslur skuldfærðar ...“ hér að neðan, þá lækkar lántökugjald úr 2% í 1,7%.

Viðskiptaskuldabréf

Ef um viðskiptaskuldabréf er að ræða þarf ekki að útbúa skuldabréfið í banka. Því fellur niður kostnaðarliðurinn „Skuldabréf útbúið“.

Ef þú ert ekki viss um hvað viðskiptaskuldabréf er, þá á það að öllum líkindum ekki við um lánið þitt.

Stimpilgjald

Stimpilgjald

Stimpilgjald er gjald sem skv. lögum þarf að greiða til ríkissjóðs við útgáfu veðskuldabréfs. Það nemur 1,5% af höfuðstóli lánsins.

%
Lántökugjald   

Lántökugjald

Fyrir stofnun láns taka lánastofnanir almennt lántökugjald, sem er ákveðið hlutfall af lánsfjárhæðinni. Lántökugjaldið er 2% af lánsfjárhæð í skuldabréfalánum Landsbankans, en minnkar í 1,7% ef lántaki er félagi í Vörðunni eða Námunni og lætur skuldfæra greiðslur af reikningi.

%
Skuldabréf

Skuldabréf útbúið

Gjald fyrir þá vinnu að útbúa skuldabréf fyrir lánið nemur 2800 kr. í skuldabréfalánum Landsbankans. Þetta gjald fellur niður þegar um viðskiptaskuldabréf er að ræða (því að þá þarf bankinn ekki að útbúa það).

kr.  
Greiðslugjald

Greiðslugjald

Á hverja greiðslu af láninu leggst fastur kostnaður. Í skuldabréfalánum Landsbankans nemur þetta gjald almennt 595 kr., en lækkar í 195 kr. ef valið er að skuldfæra hverja greiðslu sjálfkrafa af viðskiptareikningi.

kr.
Fyrsti vaxtadagur

Fyrsti vaxtadagur

Fyrsti vaxtadagur er upphafsdagur lánstímans, dagurinn þegar lántaki fær andvirði lánsins afhent.

Fyrsti gjalddagi

Fyrsti gjalddagi

Fyrsti gjalddagi er dagsetning fyrstu greiðslu. Fyrsti gjalddagi er almennt mánuði eftir fyrsta vaxtadag, en stundum er samið um annað. Hér má stilla fyrsta gjalddaga til að reikna með. Hann verður þó alltaf að vera síðar en fyrsti vaxtadagur.

Lánstími

Lánstími

Lánstíminn er tíminn frá fyrsta vaxtadegi til síðasta gjalddaga, í mánuðum talið.

ár  
Þar af afborgunarlaust í

Þar af afborgunarlaust

Hægt er að haga lánagreiðslum þannig að í fyrstu séu ekki greiddar neinar afborganir á gjalddögum, heldur aðeins vextir og greiðslugjald. Slíkir gjalddagar nefnast vaxtagjalddagar.

Ef vaxtagjalddagar eru notaðir, þá dreifist greiðsla höfuðstóls á þá venjulegu gjalddaga sem eftir eru. Afborganir af höfuðstóli verða því hærri á hverjum venjulegum gjalddaga, til að bæta það upp að ekkert var borgað af höfuðstólnum í fyrstu.

ár  
Þar af greiðslulaust í

Þar af greiðslulaust

Hægt er að gera afborgunarlausu gjalddagana, eða einhvern hluta þeirra, líka vaxtalausa, og þar með alveg greiðslulausa. Þannig falla nokkrir fyrstu gjalddagarnir alfarið niður.

Þeir vextir sem hefðu átt að greiðast á þessum gjalddögum dreifast þess í stað á þá gjalddaga sem eftir eru. Þannig verka þessir uppsöfnuðu vextir eins og aukning í eftirstöðvum, nema hvað vextir og verðbætur reiknast ekki á þessar auknu eftirstöðvar. (Gengisþróun getur hins vegar haft áhrif á verðgildi þeirra í krónum, í lánum sem tekin eru í erlendum myntum).

ár  
Greiðslur verða á

Greiðslubil

Algengast er að greiðslur af láni fari fram mánaðarlega. Hægt er að hafa fleiri en einn mánuð á milli greiðslna, en bilið hleypur alltaf á heilum mánuðum. Lánstíminn er þetta bil, margfaldað með fjölda gjalddaga:

Lánstími = Greiðslubil × Fjöldi gjalddaga

mánaða fresti.
Upphæð

Lánsupphæð

Upphæð lánsins er upphaflegur höfuðstóll þess.

Af þessari upphæð dregst upphafskostnaður lánsins (stimpilgjald, lántökugjald og útgáfa skuldabréfs), og þannig fæst út andvirði lánsins: sú fjárhæð sem lántaki fær afhenta við upphaf lánstímans.

kr.
Vextir á ári

Vextir á ári

Ársvextir láns (í prósentum), þ.e. nafnvextir, tákna hversu mikla vexti (í krónum) þyrfti að borga af höfuðstólnum á einu ári, ef hann breyttist ekkert yfir árið:

Vaxtagreiðsla á ári = Höfuðstóll × Ársvextir

eða á mánaðarlegum gjalddögum:

Vaxtagreiðsla á mánuði = Höfuðstóll × Ársvextir / 12

Í vaxtatöflu Landsbankans birtast þeir ársvextir sem gilda um skuldabréfalán í hinum ýmsu kjörvaxtaflokkum á hverjum tíma.

%
Verðbólguspá

Verðbólguspá

Í verðtryggðu láni fara greiðslurnar eftir efnahagsþróun, og ekki er hægt að vita hana fyrir. Lánareiknirinn gerir því ráð fyrir tiltekinni verðbólguprósentu („verðbólguspá“) til að spá fyrir um verðbæturnar. Hér má stilla verðbólguspána; sjálfgefna gildið 0% er aðeins gefið sem dæmi.

%