Hvernig fór þetta fram?
1. Skráning
Þátttakendur fengu afhent ráðstefnugögn við innskráningu á ráðstefnudag, þ.m.t. límmiða sem notaðir voru til að bóka einkaviðtöl við leiðbeinendur.
2. Dagskrá mótuð
Þátttakendur komu saman á Háskólatorgi kl. 9.00 og mótuðu dagskrána í sameiningu. Hver og einn gat sett fram óskir um umræðuefni sem hann hafði áhuga á að ræða eða kynna fyrir öðrum. Þátttakendur settu dagskrártillögur sínar upp á umræðutöflu sem stað-sett var á torginu. Umsjónarmenn viðburðarins notuðu svo tillögurnar til að setja saman dagskrá.
3. Einkaviðtöl bókuð
Á sama tíma gátu þátttakendur bókað einkaviðtöl við leiðbeinendur sem sérstaklega voru fengnir á við-burðinn til að veita ráðgjöf. Þátttakendur bókuðu tíma á viðtalstöflu á Háskólatorgi.
4. Umræðuhópar
Þátttakendur völdu sér síðan umræðuefni sem komust á dagskrá. Hver umræðuhópur fékk afmarkað svæði í nágrenni Háskólatorgs. Þátttakendum var síðan frjálst að færa sig milli umræðuhópa töldu þeir að umfjöllunarefni annarra hópa félli betur að áhugasviði þeirra.
5. Einkaviðtöl
Einkaviðtölin fóru fram á afmörkuðum borðum á Háskólatorgi. Viðtölin fóru fram á milli kl. 10 og 14.