Til að fræðast um fjárfestingarumhverfið á Íslandi er ráðlagt að kynna sér vel Seed forum ráðstefnuna á Íslandi. Árlega fær fjöldi sprotafyrirtækja tækifæri til að kynna fyrirtækið sitt og kalla eftir fjármagni frá áhugasömum áhættufjárfestum og fjárfestingarsjóðum sem ár hvert eru duglegir að sækja ráðstefnuna.
Einnig getur fyrirtækið skráð sig inn á Iceland Angels. Iceland Angels er íslenskt englanet sem hefur það að markmiði að leiða saman fyrirtæki og fjárfesta. Inni á vefsvæði Angelsoft geta fyrirtæki skráð sig, veitt upplýsingar um viðskiptaáætlun og fjármagnsþörf.
Á vef Norden er að finna gott yfirlit yfir fjárfestingarumhverfi fjárfesta og fjárfestingarsjóði á Norðurlöndunum.
Auður Capital rekur fjárfestingarsjóðinn Auður I. Auður fjárfestir í fyrirtækjum sem líkur eru á að geti vaxið hratt og vinna í verkefnum er tengjast mann- og fjárauði kvenna.
Eyrir Invest leggur meðal annars áherslu á að styrkja og styðja við efnileg sprotafyrirtæki á Íslandi. Eyrir Invest hefur nú þegar fjárfest í nokkrum sprotafyrirtækjum, en sjóðurinn sækir í fyrirtæki sem hafa til lengri tíma litið mikla vaxtamöguleika.
Eignarhaldsfélag Suðurlands er fjárfestingarfélag sem tekur þátt í stofnun og starfsemi félaga sem rekin eru á grundvelli arðsemissjónarmiða, fela í sér nýmæli í atvinnulífi og eru mikilvægur þáttur í uppbyggingu atvinnulífs á Suðurlandi.
Eignarhaldsfélag Suðurnesja veitir stuðning við uppbyggingu atvinnulífs á Suðurnesjum. Stuðningurinn getur verið í formi láns eða hlutafjárkaupa og bæði til nýrra fyrirtækja sem og fyrirtækja sem nú þegar eru í rekstri á Suðurnesjum.
Nýsköpunarsjóður Atvinnulífsins fjármagnar verkefni hjá nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum með hlutafjárframlagi eða í undantekningartilfellum með láni.
Samlagssjóðurinn Frumtak leggur áherslu á að fjárfesta í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum sem hafið hafa rekstur og hafa þörf fyrir fjármagn til að vaxa eða sækja á erlenda markaði. Frumtak fjárfestir í fyrirtækjum í hinum ýmsu atvinnugreinum.
Thule Investments leggur áherslu á að fjárfesta í fyrirtækjum sem hafa lokið hönnun og þróun og eru framleiðslufær; fyrirtæki sem líklegt er að vaxi hratt með kraftmikilli sókn á markaðinn.
Tækifæri er fjárfestingasjóður sem fjárfestir í nýsköpun eða nýmæli í atvinnulífi á Norðurlandi. Verkefni þurfa að hafa hagrænt gildi, vera atvinnuskapandi og leiða til sem mestra margfeldisáhrifa á atvinnulíf svæðisins.
Landsbankinn hf. Austurstræti 11, 155 Reykjavík, Kt. 471008-0280
Swift: NBIIISRE Reglur Lagalegur fyrirvari Umboðsmaður viðskiptavina Veftré