Lán færð í 90% af eignav. gegn eiginfjárframlagi

Landsbankinn er reiðubúinn að færa niður skuldir fyrirtækja gegn því að eigendur leggi fyrirtækinu til nýtt hlutafé. Samhliða þessu kemur til greina að breyta skuldum í hlutafé eða víkjandi lán.

Við endurskipulagningu skulda skal tryggt að nýtt eigið fé frá eigendum og eftirstöðvar skulda séu að mati bankans að lágmarki 100% af virði endurmetinna eigna og trygginga bankans, eða af verðmæti fyrirtækis með hliðsjón af áætluðu sjóðstreymi eftir því hvort er hærra, að viðbættu virði annarra trygginga. Nýtt eigið fé greiðist inn á lán fyrirtækis hjá Landsbankanum.

Ávallt skal miða við að skuldir eftir niðurfellingu og eiginfjárframlag eiganda séu að jafnaði ekki hærri en 90% af eignavirði eða heildarvirði, hvort sem er hærra, og verði í þeim myntum sem endurspegla tekjur fyrirtækisins.

Fyrir hverja krónu eigin fjár sem eigendur leggja fyrirtækinu til umfram 10% af heildarvirði eða eignavirði, lækka skuldir fyrirtækis um 1,5 krónur á meðan skuldir eru umfram 70% af heildarvirði eða eignavirði. Miðað skal við að niðurfærsla skulda verði ekki hærri en 60% af höfuðstól lána.

Kjör og lánstími á lánum eftir endurskipulagningu eru samkvæmt gjaldskrá Landsbankans hverju sinni og taka mið af undirliggjandi veðum. Stefnt skal að því að eins mikill hluti lána fyrirtækis og mögulegt er sé í endurgreiðsluferli en ljóst er að í sumum tilfellum þarf hluti lána að vera á formi eingreiðsluláns.

Kynntu þér málið