Landsbankinn hefur þegar hafið yfirferð allra sambærilegra bílalána og fjallað var um í dómi Hæstréttar í málinu 50/2013. Þar sem við á verður endurreikningur leiðréttur þannig að hann verði í samræmi við niðurstöðu dómsins.
Nánari upplýsingar ásamt spurningum og svörum
Almennar og sértækar lausnir fyrir fyrirtæki
Landsbankinn ætlar sér stórt hlutverk í endurreisn íslensks efnahagslífs. Þess vegna býður bankinn fyrirtækjum ýmis úrræði með það fyrir augum að styrkja fjárhagsstöðu þeirra.
Landsbankinn hefur sett sér skýrar leiðbeiningar um aðgerðir til aðstoðar fyrirtækjum í greiðsluerfiðleikum og fylgir jafnframt sameiginlegum reglum fjármálafyrirtækja um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja.
Landsbankinn býður fyrirtækjum upp á almennar eða sértækar lausnir. Almennar lausnir henta fyrirtækjum sem eru með góða eignastöðu, þ.e. hátt eignavirði, rekstrarvirði eða heildarvirði, en eiga í tímabundnum greiðsluerfiðleikum. Sértækar lausnir henta fyrirtækjum sem eru með laskaðan efnahag, þ.e. lágt eigna-, rekstrar- eða heildarvirði, neikvæða eiginfjárstöðu og/eða eru í greiðsluvanda.
Almennar lausnir
Fyrirtækjum sem geta eingöngu greitt vexti og hluta afborgana af lánum miðað við uppfærð vaxtakjör stendur til boða að fá greiðslufrest á hluta eða allar afborganir lána í 12-24 mánuði.
Nánar
Sértækar lausnir
Beina brautin er samkomulag um hraðari úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Landsbankinn mun samkvæmt samkomulaginu gera lífvænlegum fyrirtækjum tilboð um endurskipulagningu skulda sinna fyrir 1. júní 2011.
Lítil og meðalstór fyrirtæki með skuldir allt að 1.000 m. kr. geta fengið skuldir sínar lækkaðar niður að endurmetnu eigna- og rekstrarvirði þeirra, hvoru sem hærra er, að viðbættu virði annarra trygginga og ábyrgða fyrir skuldum fyrirtækis (heildarvirði fyrirtækis). Þá stendur til boða að setja hluta skulda í biðlán til þriggja ára til að leysa greiðsluvanda fyrirtækisins. Almennt eru kjörin á biðláninu mjög hagstæð.
Landsbankinn hefur ákveðið að Beina brautin skuli ná til fleiri lífvænlegra fyrirtækja í greiðsluerfiðleikum en upphaflega var stefnt að. Landsbankinn hefur því rýmkað reglur varðandi mikilvægi eigenda sem gerir fleiri félögum kleift að nýta úrræðið. Einnig býður Landsbankinn fyrirtækjum með heildarvirði hærra en skuldir að nýta sér úrræðið ef þau eru í greiðsluvanda, jafnvel þó ekki þurfi að koma til afskrifta á skuldum þeirra.
Nánar
Hentar stærri fyrirtækjum í greiðsluerfiðleikum sem eru með vaxtaberandi skuldir yfir 750 m.kr. og þar sem ljóst er að eigandi getur reitt fram nýtt eigið fé. Í þeim tilvikum þar sem um lífvænleg fyrirtæki er að ræða er Landsbankinn reiðubúinn að færa niður skuldir fyrirtækis. Samhliða þessu kemur til greina að breyta skuldum í hlutafé eða víkjandi lán.
Nánar