Fjöldi lítilla og meðalstórra fyrirtækja hefur vaxið undanfarin ár og spila þau nú aukið hlutverk í íslensku viðskiptalífi. Greiður aðgangur að þekkingu, faglegri ráðgjöf, fjármögnun og annarri fjármálaþjónustu skiptir verulegu máli fyrir starfsemi fyrirtækja, óháð stærð.
Megináhersla Fyrirtækjaþjónustu Landsbankans er að sinna þörfum lítilla og meðalstórra fyrirtækja á traustan og faglegan hátt. Fyrirtækjaþjónusta útibúa Landsbankans hefur á að skipa reynslumiklum hópi sérfræðinga sem hefur mikla og góða þekkingu á fjármálaþjónustu. Þessi hópur leggur kapp á að veita alhliða, faglega og sérsniðna bankaþjónustu sem uppfyllir þarfir lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
Landsbankinn býður fyrirtæki velkomin í viðskipti og hvetur þau til þess að kynna sér þjónustu bankans hér á vefnum eða fá aðstoð og ráðgjöf hjá fyrirtækjasérfræðingum okkar í næsta útibúi.
Við bendum einnig á að hægt er að hafa samband við Ráðgjafa- og þjónustuver Landsbankans í síma 410-4000 (opið virka daga milli kl 8 og 19 og á laugardögum frá 11 til 15) eða senda okkur fyrirspurn á netfangið info@landsbankinn.is. Við svörum við fyrsta tækifæri.
Fyrirtæki í viðskiptum við Landsbankann fær sinn eigin tengil sem leggur sig fram um að kynna sér helstu þarfir þess og veita persónulega sem og alhliða bankaþjónustu.
Útibúanet Landsbankans
Kassauppgjör fyrir verslanir (xls)