Eignastýring

Alhliða þjónusta

Stýring eigna bíður upp á sérsniðna eignastýringu fyrir lögaðila þar með talið fyrirtæki, styrktarsjóði og lífeyrissjóði. Stýring eigna býður einnig lífeyrissjóðum upp á alhliða þjónustu þ.e. sjá um allan rekstur lífeyrissjóðsins þar með talið bókhald, móttaka lífeyrisiðgjalda, útreikning og útgreiðslu lífeyris. Í dag eru fjórir lífeyrissjóðir í fullum rekstri hjá Eignastýringu Landsbankans. Starfsmenn deildarinnar eru 5 talsins og búa yfir samtals 45 ára starfsreynslu á sviði fjármála.

Fjárfestingastefna og virk stýring

Í upphafi er mótuð fjárfestingastefna sem tekur mið af markmiðum og aðstæðum hvers viðskiptavinar. Sérfræðingar Eignastýringar sjá síðan um að fjárfesta fyrir viðskiptamenn sína innan þess ramma sem markaður hefur verið.

Eignasamsetning safnsins er þannig í stöðugri endurskoðun, sem er nauðsynlegt í síbreytilegu umhverfi. Með þessu er stefnt að hámarksávöxtun fyrir viðskiptavininn. Eignasafni viðskiptavina er að sjáfsögðu haldið aðskildu frá eignum annarra og eignum bankans.