Hvað er RSS?

RSS íkonRSS-fréttaveitur gera notendum kleift að fylgjast með birtingu efnis á vefsvæðum að eigin vali. Nýjustu fréttum og öðru vefefni er safnað saman á einn stað og sparar notandanum heimsókn á hverja vefsíðu.

Veiturnar kallast RSS, sem er samheiti yfir nokkra XML-staðla sem lýsa fréttatengdu efni svo hægt sé að miðla því úr upplýsingaveitum á staðlaðan hátt. Ekki eru allir sammála um fyrir hvað skammstöfunin RSS stendur en flestir segja hana þó standa fyrir Really Simple Syndication eða „mjög einföld fréttamiðlun“.

Hvernig nota ég RSS-fréttaveitur?

Til að skoða RSS-fréttalista þarf að nota sérstök forrit, svokallaða RSS-lesara (RSS Reader). RSS-lesarar eru ekki ósvipaðir tölvupóstforritum sem sækja nýjasta efni á vefsíður sem settar hafa verið í áskrift. Suma RSS-lesara þarf að hala niður af netinu og setja upp á viðkomandi tölvu, meðan aðrir eru á netinu og því hægt að nota þá í hvaða tölvu sem er.

Þegar RSS-lesari hefur verið valinn er hann notaður til að gerast áskrifandi að því efni sem óskað er eftir. Á vefjum sem birta fréttaefni – þar á meðal á vef Landsbankans – má sjá appelsínugulan hnapp við fréttalista (RSS-hnapp). Til að gerast áskrifandi þarf aðeins að smella á RSS-hnappinn og fæst þá aðgangur að RSS-veitunni.

Í nýjustu útgáfum helstu vafra (s.s. Internet Explorer 7, Mozilla Firefox 2.0 o.fl.) er sérstakur RSS-stuðningur sem gerir notandanum kleift að gerast áskrifandi að fréttalistanum beint úr vafranum. Í eldri vöfrum þarf að afrita (copy) slóðina að RSS-veitunni og líma (paste) hana inn í lesara að eigin vali.

Hvar finn ég RSS-lesara?

Fjölmargir ólíkir RSS-lesarar eru á markaðnum og sífellt birtast nýjar útgáfur. Ólíkir lesarar eru fyrir ólík stýrikerfi og þarf því að velja lesara sem henta viðkomandi stýrikerfi.

Dæmi um RSS-lesara

Lesarar á vef:

Windows:

Mac OS X