Fréttir

28. febrúar 2013 10:50

Fjölsóttur hádegisverðarfundur Landsbankans í Mjódd

Landsbankinn í Mjódd bauð fulltrúum lítilla og meðalstórra fyrirtækja í viðskiptum við útibúið til hádegisverðarfundar þann 21. febrúar síðastliðinn. Fundurinn sem haldinn var í Turninum í Kópavogi, var mjög vel sóttur en fulltrúar um 120 fyrirtækja sóttu fundinn.

Markmið fundarins var að kynna starfsemi bankans, stöðu hans og þær vörur sem bankinn hefur að bjóða. Friðgeir M. Baldursson, útibússtjóri, bauð gesti velkomna og kynnti bankann og útibúið í Mjódd. Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar Landsbankans, fjallaði um efnahagshorfur á Íslandi. Davíð Björnsson, forstöðumaður á Fyrirtækjasviði Landsbankans, fjallaði um byggingamarkaðinn á höfuðborgarsvæðinu. Loks sagði Knútur Rafn Ármannsson, garðyrkju- og ferðaþjónustubóndi í Friðheimum Bláskógabyggð frá rekstri Friðheima, en félagið tengir saman tómatarækt og ferðaþjónustu.

Að loknum erindum kynntu starfsmenn fyrirtækjaþjónustu útibúsins og sérfræðingar Bíla- og tækjafjármögnunar Landsbankans þær vörur og þjónustu sem bankinn hefur upp á að bjóða fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Þetta var fyrsti fundurinn af átta í röð hádegisfunda sem bankinn boðar til um allt land á næstu mánuðum. Næsti fundur verður haldinn í mars á vegum Landsbankans í Borgartúni.

Friðgeir M. Baldursson útibússtjóri á hádegisverðarfundinum.
Friðgeir M. Baldursson útibússtjóri á hádegisverðarfundinum.
Knútur Rafn Ármannsson, garðyrkju- og ferðaþjónustubóndi í Friðheimum.
Knútur Rafn Ármannsson, garðyrkju- og ferðaþjónustubóndi í Friðheimum.
Fundargestir á hádegisverðarfundi í Turninum Kópavogi.
Fundargestir á hádegisverðarfundi í Turninum Kópavogi.