Fréttir

28. febrúar 2013 15:25

Er nýi tíuþúsund króna seðillinn tímaskekkja?

Ofangreindri spurningu varpar Ari Skúlason hagfræðingur fram í nýrri grein á umræðuvef bankans.

Ari vekur þar athygli á þeirri staðreynd að æ fleiri þjóðir taka stóra seðla úr umferð þar sem þeir eru aðallega taldir nýtast til greiðslu fyrir svarta vinnu eða glæpastarfsemi. Hann spyr hvort verið geti að ákvörðun Íslendinga um að taka upp 10.000 króna seðil ýti undir svarta vinnu á meðan yfirlýst markmið sé að draga úr henni.

Greinin í heild á Umræðunni - umræðuvef Landsbankans