Fréttir

27. febrúar 2013 16:27

Snjallgreiðslur – gjörbreytt hugsun við millifærslur

„Leggðu þetta bara inn á netfangið mitt“

Landsbankinn hefur gert kennitölur og reikningsnúmer óþörf við millifærslur með svokölluðum snjallgreiðslum, því þær fela í sér að nú er hægt að millifæra á netföng eða farsímanúmer viðtakanda. Sígilda aðferðin verður þó enn í boði, tilgangurinn er fyrst og fremst að bjóða upp á fleiri og þægilegri kosti fyrir viðskiptavini.

Snjallgreiðslur eru fyrsta lausn sinnar tegundar á Íslandi og eru næsta skrefið sem Landsbankinn tekur í þróun netbanka og farsímalausna. Þetta fylgir í kjölfar innleiðingar á nýju öryggiskerfi í netbanka einstaklinga sem hafði í för með sér aukið öryggi og þægindi og gerði auðkennislykilinn óþarfan.

Það borgar sig að vera skráður

Með því að opna strax fyrir snjallgreiðsluboðleið – farsímanúmer eða netfang – auðveldar þú fólki að millifæra á reikninginn þinn. Viðskiptavinir allra banka á Íslandi geta tekið við snjallgreiðslum en eingöngu er hægt að framkvæma snjallgreiðslur í netbanka einstaklinga hjá Landsbankanum, hvort sem er í tölvu eða á farsímavefnum L.is.

Nánari upplýsingar um snjallgreiðslur

Snjallgreiðslur Landsbankans (á farsímavefnum L.is)