28. janúar 2013 16:13
Við kveðjum pappírinn

Eitt af markmiðum Landsbankans er að draga verulega úr pappírsnotkun. Er það gert til að draga úr rekstrarkostnaði en tekur einnig mið af umhverfissjónarmiðum í samræmi við stefnu bankans um samfélagsábyrgð. Á næstu mánuðum munum við því smámsaman hætta útsendingum á pappír til viðskiptavina þar sem því er við komið nema þar sem bankanum ber lagaleg skylda til að halda slíkum sendingum áfram.
Kreditkort: Frá og með 5. febrúar sendum við í síðasta sinn til einstaklinga yfirlit og greiðsluseðla kreditkorta.
Pappírslaus viðskipti fela í sér öryggi, hagkvæmni og sparnað fyrir viðskiptavini. Í netbankanum eru greiðsluseðlar og yfirlit aðgengileg. Við hvetjum því þá viðskiptavini sem ekki eru með aðgang að netbankanum að sækja um aðgang.
Viðskiptavinir geta sótt um að fá áfram sendan pappír heim fyrir þær vörur sem verða pappírslausar.
Nánar um pappírslaus viðskipti Landsbankans